Nýtt tölvusneiðmyndatæki kostar 200 milljónir Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 9. október 2013 10:39 Ekki gert ráð fyrir kaupum á nýjum sneiðmyndatækjum fyrir næsta ár hjá Landspítala.
Jón Hilmar Friðriksson, framkvæmdastjóri á Landspítalanum, segir ástandið oft viðkvæmt þegar tæki eins og tölvusneiðmyndatæki eru staðsett á sitthvorum staðnum, það er í Fossvogi og við Hringbraut. Þau þurfa oft viðhalds, ásamt því sem alltaf er hætta á að slíkur tækjabúnaður bili. Óhagræðið er oft mikið fyrir sjúklinga og öryggi þeirra stefnt í hættu. Þá er slíkur flutningur kostnaðarsamur fyrir spítalann. Jón Hilmar segir gróft áætlað verð á tölvusneiðmyndatæki vera í kringum 200 milljónir. Ekki hafði verið gert ráð fyrir kaupum á nýjum sneiðmyndatækjum fyrir næsta ár. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hafði fyrri ríkisstjórn gert ráð fyrir 900 milljónum árlega í tækjakaup, þar af um 600 milljónum í sérstaka viðbótargreiðslu sem koma áttu árlega í þrjú ár. Þeir fjármunir eru ekki í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Tölvusneiðmyndatæki Landspítalans eru annars vegar frá árinu 2009 og 2010. Spítalinn bíður nú eftir niðurstöðu stjórnvalda um tækjakaupaáætlun en fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra hafa lýst því yfir að niðurstaða nýrrar tækjakaupaáætlunar verði kynnt fyrir ríkisstjórn og fjárlaganefnd fyrir aðra umræðu fjárlaga. Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðisráðuneytinu er verið að leggja lokahönd á tækjakaupatillögu sem lögð verður fyrir stjórnvöld, þar sem tekin eru fyrir tækjakaup, búnaður og hugsanlega endurbætur á hluta húsnæðis Landspítalans. Nákvæmar fjárhæðir til þessara útgjaldaliða liggja ekki fyrir.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira