Tröllalömb úr Grímsey Kristján Már Unnarsson skrifar 9. október 2013 19:00
Sauðfé af Norður- og Austurlandi kemur mjög vænt til slátrunar í haust og er fallþunginn mun hærri en í fyrra, öfugt við það sem gerist sunnanlands. Hvergi virðast lömbin þó þrífast betur en í Grímsey. Þetta kom fram í viðtali í fréttum Stöðvar 2 við Sigmund Hreiðarsson, stöðvarstjóra Norðlenska á Húsavík, sem framleiðir kjötvörur undir merkjum Goða. Í sláturhúsinu á Húsavík eru nú um 150 manns að störfum, þar af um helmingurinn Íslendingar. Starfsfólkið er af 19 þjóðernum en í sláturtíðinni var því fjölgað um 90-100 manns.Um 150 manns starfa nú í sláturtíðinni hjá Norðlenska á Húsavík.Myndir/Baldur Hrafnkell Jónsson.Bændurnir streyma inn í röðum með lömbin til slátrunar og bíða jafnan spenntir að sjá tölur um fallþunga, sem Sigmundur segir að sé um 300 grömmum meiri í ár en í fyrra. Hann hafði einnig frétt af því að fallþunginn hjá Fjallalambi á Kópaskeri væri enn meiri, þar væru lömbin 400 grömmum þyngri en í fyrra, og telur Sigmundur að gott sumar norðan- og austanlands hljóti að eiga hér hlut að máli.Lömb á leið til slátrunar á Húsavík. Þau eru 300 grömmum þyngri að meðaltali en í fyrra.Einn staður virðist þó standa upp úr en það er Grímsey, en þaðan komu 40 lömb til slátrunar á Húsavík, sem reyndust vænni en önnur. Meðalvigtin 22,49 kíló, sem er með því mesta sem sláturhússtjórinn sér. „Við vissum að mannfólkið hefur það mjög gott í Grímsey en féð virðst líka koma mjög sterkt þaðan. Bara góð beit, - enginn vafi, þar er gott að vera,” segir Sigmundur Hreiðarsson í viðtali á Stöð 2.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira