Innlent

Margir kvíðnir vegna ástandsins

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Lögreglan

Engin er nú á gjörgæslu vegna kórónuveirufaraldursins sem er í mikilli rénun. Andleg vanlíðan hefur hins vegar aukist vegna afleiðinga faraldursins. 

Þrír greindust með Covid 19 síðasta sólahring og voru þeir allir í sóttkví. Tveir á Vestfjörðum og einn á höfuðborgarsvæðinu. Ellefu eru spítala og Í fyrsta skipti síðan í mars er engin sjúklingur á gjörgæslu.

Þetta kom fram á blaðamannafundi almannavarna og Landlæknis. 

Í síðasta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar var ákveðið að auka framlög til geðheilbrigðismála um 500 milljónir króna. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að fleiri leiti þangað nú en áður vegna andlegrar vanlíðunar

Þegar faraldurinn var í hámarki voru margir sem höfðu samband vegna kvíða við sjúkdóminn Covid-19. Það hefur breyst og nú finnum við að fólk er að hafa meira samband þar sem því líður illa útaf samfélaglegum breytingum og er kvíðið,“ segir Ragnheiður. 

Hún segir að fleiri sálfræðingar verði ráðnir á þær 15 heilsugæslur sem eru á höfuðborgarsvæðinu.

  „Við munum auka verulega í sálfræðiþjónustuna og munum auglýsa eftir sálfræðingum á næstunni,“ segir Ragnheiður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×