Hildigunnur: Ekki séns að vera áfram hjá Tertnes Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. febrúar 2015 12:30 Hildigunnur Einarsdóttir. Vísir/Ernir
Hildigunnur Einarsdóttir, landsliðskona í handbolta, er gengin til liðs við norska B-deildarliðið Molde frá úrvalsdeildarliðinu Tertnes. Hildigunnur staðfesti þetta við mbl.is í morgun. Hildigunnur ber Tertnes ekki vel söguna í samtalinu við mbl.is. „Þeir hafa gerst sekir um ítrekuð samningsbrot, bæði hvað varðar íbúð, vinnu og fleira. Ég hugsaði að það væri ekki þess virði að vera á stað þar sem manni liði ekki vel. „Ég var hætt að vera sátt þarna og fékk nóg í janúar. Ég hringdi þá í umboðsmanninn minn og athugaði hvort það væri hægt að losna,“ sagði Hildigunnur sem var afar ósátt með stöðu sína hjá Tertnes. „Þegar ég kom fyrst sögðu stelpurnar í liðinu að þjálfarinn væri svolítið hallandi á stelpur sem væru búnar að vera lengi í liðinu. Ég hugsaði að ég mundi bara vinna mér inn sæti en fékk nóg þegar ég sá í janúar, búin að vera í tvö og hálft ár, að samkeppnin hafði bara aldrei verið ósanngjarnari. „Það var ekki séns að vera í Tertnes áfram svo ef það hefði ekki gengið upp að fara til Molde þá hefði ég komið bara heim. Nú ætla ég bara að einbeita mér, standa mig vel og koma mér í betra handboltaform. Ég finn út úr næstu skrefum eftir það,“ sagði Hildigunnur við mbl.is. Hjá Molde hittir hún fyrir Einar Jónsson, aðstoðarþjálfara íslenska landsliðsins en hann tók við þjálfun norska liðsins 2013. Hildigunnur gerði samning við Molde út leiktíðina með möguleika á framlengingu að því loknu. Liðið er í 2. sæti B-deildarinnar.
Handbolti Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira