Vegna pistils hr. Baldurs 21. júní 2004 00:01 Forsetaembættið - Erla Óskarsdóttir, hjúkrunarkona og ellilífeyrisþegi. Hr. Baldur getur verið afar rólegur, endalok forsetaembættisins eru ekki í huga þorra Íslendinga. Við viljum hafa forseta, og velja hann í frjálsum kosningum eftir okkar eigin mati og smekk, þar sem meirihlutinn ræður. Dalandi virðing embættisins sem hr. Baldri er tíðrætt um grunar mig að Spaugstofumenn eigi þar stóran hlut að máli. Þeir hafa verið iðnir við að gera grín að ráðamönnum þjóðfélagsins. Löngu er tímabært að því linni, það er ekki fyndið að endurtaka sömu eftirhermurnar viku eftir viku. Ég veit að álíka grín var stoppað í fæðingu þegar átti að grínast með ákveðna athöfn fyrrverandi ástsæls forseta. Mál er að linni, ágætu Spaugstofumenn. Hr. Baldur, ég unni þér að sleppa við grínið að hausti, en þetta er pólitík grínsins. Hvernig hyggst hr. Baldur sporna við eyðslu unglinga? Er það ekki hlutverk heimila og skóla að sjá um þá fræðslu? Allflestir foreldrar, hygg ég að ali börn sín skynsamlega upp varðandi fjármál. Agnúarnir að mínu mati eru m.a. freistandi og lokkandi tilboð lánastofnana um auðveldar lántökur í ýmsu formi og langur vinnutími foreldra sem báðir vinna utan heimilis. Vissulega væri æskilegt að jafna kjörin og jafnvel að draga úr lífsgæðakapphlaupinu og þá hr. Baldur, erum við enn komin út í pólitík. Barátta við fíkniefni hefur tekið miklum stakkaskiptum undanfarin ár. Lögreglan hefur staðið sig mjög vel við erfiðar aðstæður. Vegna eylands okkar vantar okkur meiri mannskap, miklu, miklu fleiri menn til að kljást við þessi óhugnanlegu mál. Það kostar peninga, hr. Baldur, og þá erum við enn einu sinni komin inn í pólitíkina. Vissulega hefur býsna margt verið gert fyrir aldraða, en margt er enn hægt að gera, einkum búa margir sjúkir aldraðir við erfiðar aðstæður, það vantar hjúkrunarpláss, því fleiri þurfa á hjúkrun að halda, þar sem þjóðin eldist. Það kostar peninga. Lengi hafa elli- og lífeyrisþegar óskað eftir að 38,55 prósenta skattur á lífeyrisgreiðslur verði lækkaður t.d. í 10 prósent. Ég hef ekki heyrt neinn stjórnmálamann né -flokk taka það á sína stefnuskrá, hvað þá að lofa þessari lækkun sem yrði töluverð launabót. Þetta er ansi stór hópur sem hefur kosningarétt. Enn og aftur er um að ræða pólitík hr. Baldur, svo þú sérð að það er tæplega hægt að auglýsa sig sem ópólitískan frambjóðanda. Lífið er allt meira og minna pólitík. Að lokum vil ég þakka frábæra pistla þriðjudaginn 8. júní eftir Þráin Bertelsson og grein Valgerðar Bjarnadóttur. Göngum glöð til kosninga 26. júní. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Kjartan Kjartansson skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Skoðun Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski skrifar Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda skrifar Sjá meira
Forsetaembættið - Erla Óskarsdóttir, hjúkrunarkona og ellilífeyrisþegi. Hr. Baldur getur verið afar rólegur, endalok forsetaembættisins eru ekki í huga þorra Íslendinga. Við viljum hafa forseta, og velja hann í frjálsum kosningum eftir okkar eigin mati og smekk, þar sem meirihlutinn ræður. Dalandi virðing embættisins sem hr. Baldri er tíðrætt um grunar mig að Spaugstofumenn eigi þar stóran hlut að máli. Þeir hafa verið iðnir við að gera grín að ráðamönnum þjóðfélagsins. Löngu er tímabært að því linni, það er ekki fyndið að endurtaka sömu eftirhermurnar viku eftir viku. Ég veit að álíka grín var stoppað í fæðingu þegar átti að grínast með ákveðna athöfn fyrrverandi ástsæls forseta. Mál er að linni, ágætu Spaugstofumenn. Hr. Baldur, ég unni þér að sleppa við grínið að hausti, en þetta er pólitík grínsins. Hvernig hyggst hr. Baldur sporna við eyðslu unglinga? Er það ekki hlutverk heimila og skóla að sjá um þá fræðslu? Allflestir foreldrar, hygg ég að ali börn sín skynsamlega upp varðandi fjármál. Agnúarnir að mínu mati eru m.a. freistandi og lokkandi tilboð lánastofnana um auðveldar lántökur í ýmsu formi og langur vinnutími foreldra sem báðir vinna utan heimilis. Vissulega væri æskilegt að jafna kjörin og jafnvel að draga úr lífsgæðakapphlaupinu og þá hr. Baldur, erum við enn komin út í pólitík. Barátta við fíkniefni hefur tekið miklum stakkaskiptum undanfarin ár. Lögreglan hefur staðið sig mjög vel við erfiðar aðstæður. Vegna eylands okkar vantar okkur meiri mannskap, miklu, miklu fleiri menn til að kljást við þessi óhugnanlegu mál. Það kostar peninga, hr. Baldur, og þá erum við enn einu sinni komin inn í pólitíkina. Vissulega hefur býsna margt verið gert fyrir aldraða, en margt er enn hægt að gera, einkum búa margir sjúkir aldraðir við erfiðar aðstæður, það vantar hjúkrunarpláss, því fleiri þurfa á hjúkrun að halda, þar sem þjóðin eldist. Það kostar peninga. Lengi hafa elli- og lífeyrisþegar óskað eftir að 38,55 prósenta skattur á lífeyrisgreiðslur verði lækkaður t.d. í 10 prósent. Ég hef ekki heyrt neinn stjórnmálamann né -flokk taka það á sína stefnuskrá, hvað þá að lofa þessari lækkun sem yrði töluverð launabót. Þetta er ansi stór hópur sem hefur kosningarétt. Enn og aftur er um að ræða pólitík hr. Baldur, svo þú sérð að það er tæplega hægt að auglýsa sig sem ópólitískan frambjóðanda. Lífið er allt meira og minna pólitík. Að lokum vil ég þakka frábæra pistla þriðjudaginn 8. júní eftir Þráin Bertelsson og grein Valgerðar Bjarnadóttur. Göngum glöð til kosninga 26. júní.
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar
Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun