Erlent

Egyptar hvattir til staðfestu

Forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi, hvatti Egypta til þess að standa fast á sínu og virða að vettugi hótanir íraskra vígamanna sem halda egypskum sendimanni í gíslingu. Vígamennirnir krefjast þess að Egyptar hætti við allar áætlanir um að senda öryggissveitir til landsins. Utanríkisráðherra Egyptalands bað vígamennina í gær að sýna miskunn og bætti við að ríkisstjórnin ynni leynilega að því að frelsa sendimanninn og egypskan vöruflutningabílstjóra sem haldið er föngnum af öðrum hópi vígamanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×