Örflögubylting í Borgarbókasafni Jón Júlíus Karlsson skrifar 11. september 2013 15:04 Örflögur koma inn í allar bækur á Borgarbókasafni á næstu vikum. Mynd/Anton
Tæknibylting verður í Borgarbókasafni á næstu vikum þegar strikamerkjum og þjófavarnarræmum, sem nú prýða hvert einasta gagn safnsins, verður skipt út fyrir örflögur. Þetta er mikil hagræðing fyrir Borgarbókasafn sem þarf því ekki að þjófaverja bækur eða önnur gögn eins og gert hefur verið hingað til. Örflögurnar gera það að verkum að útlán og skil ganga mun hraðar og einfaldar fyrir sig en áður. Sem dæmi þá verður hægt að lána út margar bækur í einu í sjálfsafgreiðsluvélunum í stað þess að þurfa að renna hverri bók í gegn eins og nú er gert. Það er finnska fyrirtækið P.V. - Supa sem framleiðir örflögurnar en fyrirtækið sérhæfir sig í sjálfsafgreiðslulausnum fyrir bókasöfn. Borgarbókasafnið er fyrsta bókasafnið á Íslandi sem tekur upp þessa tækni. Guðríður Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri á Borgarbókasafninu, segir að þjófnaður sé ekki ekki algengur á safninu. Örflögurnar spari hins vegar talsverða vinnu þar sem ekki þurfi að þjófverja hverja einastu bók. „Örflagan mun einfalda útlán töluvert og þetta mun ganga mun betur og hraðar fyrir sig í sjálfsafgreiðslu en áður,“ segir Guðríður. Alls eru um 500 þúsund einstök af bókum og öðrum gögnum í sex söfnum Borgarbókasafnsins í Reykjavík. Á næsta vikum verður farið í það af krafti að örflögumerkja gögn safnsins. „Ég geri ráð fyrir að okkur takist að örflögumerkja 2-3000 bækur á klukkustund og því gætum við náð 25-30 þúsund á dag. Þetta á eftir að ganga hratt fyrir sig,“ segir Guðríður. Á meðan breytingarnar standa yfir er nauðsynlegt að loka söfnunum Borgarbókasafns. Söfnin verða því lokuð sem hér segir: Aðalsafn - 18.-23. september Ársafn og Sólheimasafn - 24.-27. september Foldasafn og Kringlusafn - 30. september - 4. október Gerðubergssafn - 7.-11. október
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Fleiri fréttir Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Sjá meira