Ríkið heggur ekki á hnútinn Andri Ólafsson skrifar 10. desember 2012 19:49
Allar hugmyndir um björgun hjúkrunarheimilsins Eirar, sem fela í sér að ríkið leggi til peninga, hafa verið slegnar út af borðinu. Búist er við átökum á fulltrúaráðsfundi sem haldinn verður á föstudag. Síðan að upplýsingar um slæma fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilsins Eirar komu upp á yfirborðið hefur ýmislegt verið reynt til að bjarga málum. Sérstakt aðgerðarteymi var stofnað en í þeimi hópi eru meðal annars fulltrúar frá Reykjavíkurborg, Mosfellsbæ, Ríkinu, íbúum, Lex lögmannsstofu og KPMG endurskoðunarfyrirtækinu. Hópurinn hefur rætt við kröfuhafa, lífeyrisjóði og íbúðalánasjóð og unnið að því finna leiðir til að koma hjúkrunarheimilinu í skjól. Af þessum leiðum hafa nokkrar gert ráð fyrir að ríkið leggi til fjármagn og þá aðallega til að tryggja að íbúðarétthafar glati ekki þeim tveimur milljörðum sem þeir eiga inni hjá Eir. En samkvæmt heimildum fréttastofu hafa allar slíkar hugmyndir verið slegnar af borðinu. Eins og staðan er núna bendir því ekkert til þess ríkið komi til móts við hjúkrunarheimilið með beinu fjárframlagi. Það þýðir þó ekki endilega að öll nótt sé úti enn. Aðgerðarteymið fundar næst á fimmtudag og stefnir að því að kynna einhvers konar tillögu að lausn jafnvel í næstu viku. Á sama tíma er hver höndin upp á móti annarri í stjórn hjúkrunarheimilisins. Stjórnin er klofin á milli þeirra sem vilja algjöra endurnýjun í stjórn og fulltrúarráði og þeirra sem vilja sitja áfram. Því er búist við átakafundi næsta föstudag þegar fulltrúaráð kemur saman á föstudaginn til að kjósa nýja stjórna.
Mest lesið „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Fleiri fréttir Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Sjá meira