Herbalife þríþrautarkeppni um helgina Marín Manda skrifar 13. júlí 2013 10:00
Borið hefur á auknum áhuga á þríþrautarkeppnum undanfarin ár á Íslandi en þann 14. júlí fer fram Íslandsmeistaramót í þríþraut. Keppnin, Herbalife hálfur Járnmaður er einn stærsti íþróttaviðburður sinnar tegundar í Hafnarfirði og er þetta í sjöunda sinn sem keppnin er haldin.Svana Huld Linnet, formaður 3SH.„Þetta er frábær skemmtun fyrir alla að horfa á og margt af okkar besta íþróttafólki mætir til leiks en þar munu meðal annars Ólympíufararnir Kári Steinn og Jón Margeir taka þátt í liðakeppninni og líka Marta Ernstsdóttir, sem er einn frægasti langhlaupari landsins,“ segir Svana Huld Linnet, formaður 3SH. Keppt verður í þríþraut í vegalengdinni hálfur Járnmaður sem er 1.900 metra sund, 90 km hjólreiðar og svo er hlaupið 21,1 km, sem er hálfmaraþon. Skráðir keppendur eru 66 talsins en skráning er opin öllum. Í liðakeppninni taka 24 þátt. Keppnin hefst kl. níu í Hafnarfirði, nánar tiltekið í Ásvallalaug og hjólað verður meðfram Krísuvíkurvegi og svo er hlaupið um vellina. Að baki keppninni stendur þríþrautarfélagið 3SH sem er hluti af Sundfélagi Hafnarfjarðar og er Herbalife-styrktaraðili ásamt öðrum velunnurum.
Mest lesið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Bíó og sjónvarp Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira