Eindreginn vilji til sameiningar 29. október 2004 00:01
Meirihluti íbúa á Vesturlandi er hlynntur sameiningu sveitarfélaga í einhverri mynd, að því er fram kemur í nýrri könnun Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri. Spurt var hvaða sameiningarkostir þættu vænlegastir og vekur athygli að 16 prósent aðspurðra nefndu Reykjavík. Á Akranesi eru 92 prósent hlynnt sameiningu og horfa helst til hreppanna fjögurra sunnan Skarðsheiðar. Um 14 prósent nefna engu að síður Reykjavík og 11 prósent Borgarbyggð. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, segir hvorki stefnu né meiningu í sjálfu sér að sameinast Reykjavík, en kemur ekki á óvart þó svo einhverjum komi það í hug. "Við erum í fínu samstarfi við höfuðborgina. Sjálfsagt hugleiða menn þetta út frá því hversu vel hefur tekist samstarfið við Orkuveituna. Síðan líta menn björtum augum á hafnarsamlagið," segir hann og bendir á að íbúar hafi orðið áþreifanlega varir við lægri hitakostnað og hærra þjónustustig þegar samstarf hófst við Orkuveitu Reykjavíkur. Gísli segir rannsóknina fróðlega í sjálfu sér, en telur fátt koma á óvart. "Í hreppunum austur af okkur er til dæmis eindreginn vilji til að sameinast innbyrðis. Á meðan farið er yfir það mælist auðvitað ekki mikill áhugi á að sameinast Akranesi," sagði hann, en bætti við að tíminn yrði svo að leiða í ljós hvort um frekari sameiningu á svæðinu gæti orðið að ræða. "Eins og staðan er núna verður Akranes áfram eitt og sér með sitt fína samfélag, en við vonum að hinir sameinist í kringum okkur. Það styrkir bara svæðið," sagði hann. Þegar niðurstöður eru skoðaðar eftir sveitarfélögum eru vísbendingar um að 2 af 17 sveitarfélögum myndu fella sameiningu, eða að úrslit yrðu tvísýn. Þá kemur fram að fólk á nokkrum stöðum virðist horfa til dreifðra sameiningarkosta þannig að erfitt sé að spá fyrir um niðurstöðu kosninga. Ljóst þykir þó að sveitarfélögum á Vesturlandi myndi fækka úr 17 í 10, auk þess sem fækkaði um eitt á Vestfjörðum, ef niðurstöður rannsóknarinnar skiluðu sér í kosningum. "Sveitarfélögunum á Vesturlandi gæti þó fækkað meira, en heldur virðist ótryggara um það að spá," segir í skýrslunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Fleiri fréttir Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Sjá meira