EM kvenna: Hvernig er staðan í riðlunum fyrir lokaumferðina? 10. desember 2010 13:26 Marta Mangue úr liði Spánar í baráttunni gegn Sanja Damnjanovic frá Serbíu. AFP
Síðustu leikirnir í riðlakeppni Evrópumóts kvennalandsliða í handknattleik fara fram í dag og á morgun. Alls eru 16 lið sem taka þátt og leika þau í fjórum fjögurra liða riðlum og komast þrjú efstu liðin úr hverjum riðli í milliriðil. Það liggur nokkuð ljóst fyrir hvaða lið komast áfram í milliriðil en spennan er enn til staðar fyrir lokaumferðina. Í A-riðili eru Danir efstir með 4 stig eftir tvo sigurleiki. Rúmenía og Spánn koma þar á eftir með 2 stig en Serbar eru á botninum án stiga. Í dag leika Danir gegn Spánverjum og Rúmenar mæta Serbum. Þessi riðill er leikinn í Álaborg í Danmörku. Danmörk 4 stig Rúmenía 2 stig Spánn 2 stig Serbía 0 stig. B-riðill í Århus í DanmörkuAndrea Penezic frá Króatíu í baráttunni gegn Olgu Chernoivanenku frá Rússlandi.AFPÍ B-riðli er Svartfjallaland með fullt hús stiga eða 4 eftir tvo leiki. Króatía og Rússland eru með 2 stig, Ísland er án stiga. Á morgun eigast við Svartfjallaland og Króatía, og Ísland mætir heimsmeistaraliði Rússlands en þessi riðill fer fram í Århus í Danmörku. Svartfjallaland 4 Króatía 2 Rússland 2 Ísland 0 Alls komast sex lið áfram úr A og B riðli í milliriðilinn sem fram fer í Herning í Danmörku. C-riðill í Larvik í NoregiClara Wolfehring markvörður Þýskalands og Isabelle Gullden frá Svíþjóð tekur vítakast.AFPÍ C-riðli ráðast úrslitin í dag. Svíar eru efstir með 4 stig, Holland og Þýskaland eru með 2 stig og Úkraína er án stiga. Í dag eigast við Svíþjóð og Holland og Þýskaland mætir Úkraínu. C-riðill EM er leikinn í Larvik í Noregi. Svíþjóð 4 Holland 2 Þýskaland 2 Úkraína 0 D-riðill í Lillehammer í NoregiSiraba Dambele frá Frakklandi gegn Piroska Szamoransky og Monika Kovacsicz frá Ungverjalandi.AFPÍ D-riðli eru Noregur og Ungverjaland með 4 stig en þessi lið mætast í úrslitaleik um efsta sætið í Lillehammer í Noregi í dag. Frakkar og Slóvenar mætast einnig en þessi lið eru án stiga og keppa um þriðja sætið sem gefur farseðil í milliriðil. Ungverjaland 4 Noregur 4 Frakkland 0 Slóvenía 0 Alls komast sex lið áfram úr D og C riðli í milliriðilinn sem fram fer í Lillehammer í Noregi. Undanúrslitin fara fram 18. desember í Herning í Danmörku og úrslitaleikurinn fer fram daginn eftir í Herning.
Mest lesið Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Sport Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Fótbolti Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Titilbaráttunni formlega lokið í kvöld? Sport „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ Fótbolti Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira