Eiður hættir með Fylki | Kristbjörg tekur við Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. september 2016 16:22
Eiður Benedikt Eiríksson er hættur sem þjálfari Fylkis í Pepsi-deild kvenna en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í dag. Eiður hættir strax með liðið og mun Hafsteinn Steinsson, aðstoðarþjálfari, einnig hætta. Kristbjörg Helga Ingadóttir, sem kom inn í þjálfarateymi Fylkis fyrr í sumar, stýrir liðinu í síðustu tveimur leikjum tímabilsins. Fylkir hefur ekki náð sér á strik í sumar og uninð aðeins þrjá leiki af sextán. Liðið er í sjöunda sæti með þrettán stig og er í harðri fallbaráttu ásamt Selfossi, KR og ÍA. Fylkir mætir Þór/KA á laugardag og leikur svo gegn Selfossi á heimavelli í lokaumferðinni. Tilkynningunni frá Fylki fylgdi eftirfarandi yfirlýsing frá Eiði Benedikt. „Ég vil nota tækifærið og þakka starfsfólki, stjorn, stuðningsmönnum, sjálfboðaliðum, meðþjálfurum og leikmönnum fyrir samstarfið. Frá fyrsta degi leið mér mjög vel hjá Fylki og er það sérstaklega því góða fólki sem kemur að klúbbnum að þakka. Því miður var tímabilið mikil vonbrigði og tel ég að ástæðan fyrir því hafi verið að ég vildi breyta of miklu á stuttum tíma í stað þess að halda í það góða sem var fyrir. Á þessu eina ári fengu margir ungir leikmenn sýna eldskírn með meistaraflokki og er ég viss um að þeir leikmenn munu verða lykilleikmenn með tíð og tíma. Með virðingu og vinsemd. Eiður Benedikt Eiríksson“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira