Innlent

Þrjú hundruð grunnskólabörn á biðlista

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Þrjú hundruð börn eru á biðlista eftir plássi á frístundaheimili í Reykjavík vegna manneklu. Erfiðlega gengur að ráða fólk í störfin og vantar um hundrað starfsmenn á frístundaheimili borgarinnar þegar mánuður er liðinn af skólaárinu.

Í fréttum Stöðvar tvö í gær var sagt frá því að það vanti fjörutíu starfsmenn í Guluhlíð, sem er frístundaheimili fyrir fötluð börn, með þeim afleiðingum að þjónustan hefur verið skert.

Sjá einnig: Þjónusta við fötluð börn skorin niður um helming vegna manneklu á frístundaheimilum

En ástandið er víða slæmt á öðrum frístundaheimilum borgarinnar. Um hundrað starfsmenn vantar á heimilin og nú þegar mánuður er liðinn af skólaárinu eru þrjú hundruð börn á biðlista eftir plássi.

 

 

 

Soffía Pálsdóttir á skrifstofustjóri frístunda á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar segir mikla fjölgun vera í umsóknum í ár en einnig að erfitt sé að fá fólk í störfin enda launaumhverfið óhagstætt. Fyrir fimmtíu prósent starf fær ófaglærður starfsmaður um hundrað þúsund krónur útborgaðar en flestir starfsmenn eru námsmenn í hlutastörfum. Soffía segir langtímalausnina við mannekluvanda vera fjölgun á faglærðum starfsmönnum í fullu starfi.

„Það væri mjög gott að búa til festu um ákveðinn hluta starfanna. Að þetta væru heilsárs, hundrað prósent störf, þar sem að frístunda- og tómstundafræðingar gætu verið að sinna þessum störfum. Hins vegar finnst mér líka, og það er mikilvægt að það komi fram, að fá fjölbreyttan hóp fólks,“ segir Soffía og vísar þar til listafólks og háskólafólks sem sinni starfinu meðfram öðru. 

„En sannarlega vantar þessa festu til að vera ekki alltaf á byrjunarreit á hverju hausti.“ 

En þarf að hækka launin? „Já, sannarlega,“ svarar Soffía.


Tengdar fréttir

Þjónusta við fötluð börn skorin niður um helming vegna manneklu á frístundaheimilum

Frístundaþjónusta við fötluð börn í borginni hefur verið skert um fimmtíu prósent vegna manneklu á frístundaheimilum. Fjörutíu manns vantar til starfa á frístundaheimilið Guluhlíð, og segir forstöðumaður þar að á hennar starfsævi hafi aldrei verið jafn erfitt að fá fólk í vinnu. Hún sér ekki fyrir endann á ástandinu.

Frístund skert hjá fötluðum börnum

Fjörutíu starfsmenn vantar á frístundaheimili við Klettaskóla og fá börn aðeins vist í þrjá daga. Mörg eru einhverf og eiga erfitt með að daglegt líf fari úr skorðum. Forstöðumaður segir ástandið aldrei hafa verið jafn slæmt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×