Sjávarútvegsráðherra keppti við grunnskólanema Jóhann K. Jóhannsson skrifar 22. september 2016 19:00
Nýtt smáforrit, Trillan, var kynnt til leiks í Íslenska sjávarklasanum í dag og í tilefni dagsins mætti Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegsráðherra, og atti kappi við grunnskólanemendur í spurningakeppni um sjávarútveginn á Íslandi. Keppnin var liður í kynningu á nýju smáforriti sem er ætlað að kynna ungmennum fyrir ólíkum hliðum þessa rótgróna en fjölbreytta atvinnuvegs. Nýja smáforritið er einnig aðgengilegt á heimasíðunni Trillan.is en markmið forritsins er að grunnskólanemendur kynnist sjávarútveginum og hlutverki hans í íslensku samfélagi á skemmtilegan og líflegan máta. Sjávarútvegurinn spannar mjög vítt svið og ætlunin að kveikja áhuga nemenda á ólíkum hliðum þess. „Fyrst og fremst það sem við viljum er að fá aukinn áhuga. Ef að það skapast meiri áhugi hjá ungu fólki fyrir svona grein eins og sjávarútveginum þá mun það hafa þau áhrif að hann mun halda áfram að vaxa og dafna. Ég held að það sé vaxandi áhugi á hafinu og öllu er við kemur hafinu á Íslandi og unga fólkið er að sýna því miklu meiri áhuga en áður,“ segir Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans. Með tilkomu heimasíðunnar og smáforritsins er bæði hægt að lesa sér til gagns og gaman sem og prófa kunnáttu sína um sjávarútveginn og atvinnugreinina á gagnvirkan og skemmtilegan hátt. Sjávarútvegsráðherra mætti nemendum úr grunnskóla Grindavíkur og það mátti merkja örlítið stress hjá öllum keppendum. Ráðherra hafði þó betur í keppninni en hann telur að gera megi betur í því að miðla upplýsingum um sjávarútveginn,atvinnugreinina og nýsköpun í greininni betur til ungmenna, og ein leiðin er smáforrit eins og Trillan. „Mér lýst rosalega vel á þetta. Þetta er sniðug hugmynd til þess vegja áhuga unga fólksins á sjávarútveginum og ég held að þetta komi til með að reynast öllum, sem að ná sér í þetta app og fara leika sér í þessu, góð upplýsingaveita eða kynning á þessari atvinnugrein sem sjávarútvegurinn er,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegsráðherra
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Sjá meira