Ekkert lát á suðvestanáttinni Atli Ísleifsson skrifar 30. mars 2020 06:58 Spákortið fyrir hádegið eins og það leit út um klukkan sjö í morgun. Veðurstofan
Ekkert lát er á suðvestanáttinni sem ráðið hefur ríkjum á landinu um helgina. Frekar mun bæta í vindinn í dag og þá sér í lagi norðan heiða. Þannig er spáð 15 til 23 metrum á sekúndu norðantil, en 8 til 15 sunnanlands. Veðurstofan spáir að súld verði vestantil á landinu, en annars bjart með köflum. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á Suðausturlandi. „Á morgun dregur úr vindi en áfram mun vera vætusamt um landið vestanvert og eftir hádegi færist úrkoman austur yfir landið. Annað kvöld mun síðan draga úr úrkomu og kólna. Seint á miðvikudag snýst síðan í norðlægar áttir með snjókomu norðanlands og talsverðu frosti í öllum landshlutum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Á vef Vegagerðarinnar segir að hálkublettir séu á köflum um norðanvert landið og eins sé hvassviðri víða en að mestu greiðfært um landið sunnanvert. Veðurhorfur næstu daga: Á þriðjudag: Vestan 8-13 m/s og rigning, en að mestu þurrt austast. Hiti 1 til 7 stig. Á miðvikudag: Stíf vestlæg átt og él, en þurrt að kalla austanlands. Snýst í allhvassa eða hvassa norðanátt um kvöldið með snjókomu fyrir norðan en léttir til syðra. Kólnandi. Á fimmtudag: Hvöss norðanátt með snjókomu, en bjartviðri syðst. Dregur úr vindi og úrkomu eftir hádegi. Talsvert frost víðast hvar. Á föstudag: Norðan strekkingur og él fyrir norðan og austan, en léttskýjað annars staðar. Talsvert frost. Á laugardag: Minnkandi norðanátt, dálítil él norðan- og austanlands en annars léttskýjað. Áfram kalt í veðri. Á sunnudag: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt, stöku él með norður- og austurströndinni, en annars léttskýjað. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira