Fyrsti sigurinn á heimsmeistaramótinu í Overwatch í höfn Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 31. október 2019 18:36 Íslenska landsliðið í Overwatch.
Annar leikur liðsins gegn Bretum stendur nú yfir. Fylgjast má með honum hér að neðan. Íslenska landsliðið í Overwatch vann sannfærandi sigur á Írum í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramóti sem nú fer fram í rafíþróttinni í Kaliforníu. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingar komast á lokahelgi mótsins. Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fyrsta liðið til þess að vinna á þremur kortum sigrar. Eftir erfiða byrjun á fyrsta kortinu sýndi íslenska liðið yfirburði sína og vann 3-0 sigur.Stjörnuleikur hjá strákunum Í landsliði Íslands í Overwatch eru þeir Arnaldur Ingi Stefánsson (Futhark), Finnbjörn Jónasson (Finnsi), Hafþór Hákonarson (Hafficool), Hilmar Þór Heiðarsson (SteelDragons), Kristófer Númi Valgeirsson (Númi), Sindri Már Gunnarsson (Sindri) og Snorri Hafsteinsson (SnorrLaxZ). Finnsi og Hafficool sýndu meistaratakta í leiknum. Sannkallaðir menn leiksins að öðrum ólöstuðum. Finnsi spilaði síðastliðinn vetur með Paris Eternal í Overwatch League, sterkustu deildinni. Hafficool er svo á mála hjá Team Envy í Overwatch Contenders, eiginlegri B-deild.Keppa næst við Breta Leikirnir sem fara fram í kvöld eru síðasti liður umspilsins fyrir lokaúrslitin sem fara fram um helgina. Ísland er í B-riðli umspilsins og til þess að tryggja sér sæti í úrslitum þarf landsliðið að vinna lið Breta á eftir. Sigurlið þess leiks mætir svo Noregi í úrslitaleik. Ef Ísland vinnur þessa tvo leiki fer liðið í A-riðil. Þar eru fyrir Frakkland, Bandaríkin og svo Suður-Kórea, sem hefur unnið öll heimsmeistaramót til þessa. Eitt sæti í A-riðli fer svo til sigurliðs C-riðils umspilsins sem samanstendur af Kólumbíu, Filippseyjum, Ítalíu, Indlandi, Svíþjóð og Japan.Watch live video from OverwatchContenders on www.twitch.tv
Rafíþróttir Tengdar fréttir Leikar fara að hefjast á heimsmeistaramótinu í Overwatch Strákarnir í landsliði Íslands eru nú staddir í Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem þeir munu keppa, fyrir Íslands hönd, á heimsmeistaramótinu í leiknum Overwatch. 28. október 2019 12:24 Bein útsending: Fyrsti leikur íslenska landsliðsins á heimsmeistaramótinu í Overwatch Fyrsti leikur landsliðs Íslands í tölvuleiknum Overwatch hefst klukkan fimm í dag að íslenskum tíma. 31. október 2019 16:46 Íslendingur vann meistara í Overwatch Það er góð tilfinning að spila í einni stærstu tölvuleikjakeppni heims, segir Finnbjörn Jónasson, atvinnumaður í tölvuleiknum Overwatch. 18. febrúar 2019 08:00 Íslendingar unnu Evrópumótið í Overwatch Það gerðu þeir með því að sigra Danmörku 3-0 í úrslitaleiknum og með sigrinum tryggði liðið sér keppnisrétt á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Bandaríkjunum seinna á árinu. 8. september 2019 17:45 Mest lesið Líður alltaf yfir hana þegar hún kemur í mark Sport „Hefði séð eftir því alla ævi“ Íslenski boltinn „Mjög sáttur með samninginn“ Íslenski boltinn „Hann ætti bara að skrifa afsökunarbiblíuna“ Körfubolti Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Handbolti Magnús Már í viðræðum við HK Íslenski boltinn Einkunnir Íslands: Þrjár heitastar í frostinu Fótbolti Real Madrid vill stórar skaðabætur frá UEFA Fótbolti Hefur spilað 16 mínútur og fengið tvö rauð spjöld Enski boltinn Heimsleikarnir í CrossFit 2026 klárast fyrir verslunarmannahelgina Sport Fleiri fréttir Veittist að sautján ára mótherja sínum og hreytti í hann fúkyrðum Sjá meira
Leikar fara að hefjast á heimsmeistaramótinu í Overwatch Strákarnir í landsliði Íslands eru nú staddir í Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem þeir munu keppa, fyrir Íslands hönd, á heimsmeistaramótinu í leiknum Overwatch. 28. október 2019 12:24
Bein útsending: Fyrsti leikur íslenska landsliðsins á heimsmeistaramótinu í Overwatch Fyrsti leikur landsliðs Íslands í tölvuleiknum Overwatch hefst klukkan fimm í dag að íslenskum tíma. 31. október 2019 16:46
Íslendingur vann meistara í Overwatch Það er góð tilfinning að spila í einni stærstu tölvuleikjakeppni heims, segir Finnbjörn Jónasson, atvinnumaður í tölvuleiknum Overwatch. 18. febrúar 2019 08:00
Íslendingar unnu Evrópumótið í Overwatch Það gerðu þeir með því að sigra Danmörku 3-0 í úrslitaleiknum og með sigrinum tryggði liðið sér keppnisrétt á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Bandaríkjunum seinna á árinu. 8. september 2019 17:45