Innlent

Íslensk kona í Bergamo grátbiður Íslendinga að taka veiruna alvarlega

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fólk með andlitsgrímur við jarðarför í Bergamo þann 7. mars síðastliðinn. Þá höfðu 3900 greinst sýktir og 197 látist af völdum veirunnar á Ítalíu. Tölurnar hafa síðan margfaldast og er staðan hvergi verri í Evrópu.
Fólk með andlitsgrímur við jarðarför í Bergamo þann 7. mars síðastliðinn. Þá höfðu 3900 greinst sýktir og 197 látist af völdum veirunnar á Ítalíu. Tölurnar hafa síðan margfaldast og er staðan hvergi verri í Evrópu. EPA/MATTEO CORNER

Rut Valgarðsdóttir, líffræðingur sem búsett er í borginni Bergamo í Lombardy héraði á Norður-Ítalíu, biðlar til Íslendinga að taka kórónuveiruna sem veldur Covid-19 sjúkdómnum alvarlega.

Hún lýsir átakanlegu ástandi í borginni þar sem einu hljóðin sem heyrist í einangruninni sé stöðugt væl í sírenum. Yfirvöld hafi verið of lengi að átta sig á hættunni af veirunni.

Rúmlega 2500 hafa látist af völdum Covid-19 sjúkdómsins á Ítalíu og rúmlega 31 þúsund sýkst. Vöxturinn síðastliðinn sólarhring í fjölda smitaðra var tæp 13 prósent sem er þó sá minnsti þar í landi síðan 21. febrúar skv. Al Jazeera.

Segir alla hrædda

Rut hefur búið á Ítalíu í nokkur ár en hvergi í Evrópu er hlutfall sýktra með kórónuveiruna hærra en í Bergamo. Alls eru rúmlega 16 þúsund sýktir í Lombardy héraði, flestir í Bergamo.

Starfsmenn Rauða krossins að störfum á Ítalíu.AP/Andrew Medichini

Tölurnar sem birtast opinberlega um fjölda sýktra og látinna segja þó ekki alla söguna, að sögn Rutar.

„Heilbrigðiskerfið er þegar svo mettað hér hjá okkur að eingöngu þeir sem eru verulega alvarlega veikir eru testaðir fyrir veirunni,“ segir Rut. 

„Jafnvel margir þeirra sem eru verulega alvarlega veikir þurfa að berjast fyrir læknishjálp, sumir deyja heima án þess að vera nokkurn tímann testaðir því þeir ná ekki í gegnum filterana sem eru settir til að forgangsraða hjálpinni og aðrir kjósa að fara ekki á sjúkrahús því fólk sér það sem „one way ticket“ og deyja því í súrefnisnauð heima hjá sér,“ segir Rut í færslu á Facebook.

Hún segir alla í borginni þekkja einhvern sem hefur misst ástvin eða þekki einhvern á gjörgæslu. Allir séu hræddir.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir er landsliðskona Íslands í knattspyrnu og spilar með AC Milan í Mílanó sem er sömuleiðis í Lombardy-héraði. Hún lýsti stöðu sinni í viðtali í Sportinu í dag á Stöð 2 Sport. Hún segir erfitt að vakna enda ekkert framundan.

Barátta dag sem nótt

„Sjúkrahúsið í Bergamo er í stöðugum breytingum, almennum deildum hefur verið breytt í bráðadeildir, dagdeildum hefur verið lokað, sjúkrahúsið hefur ráðið aukastarfsfólk og herinn hefur lagt til lækna og hjúkrunafólk til að manna vaktirnar sem verða lengri og dramatískari eftir því sem á líður,“ segir Rut.

Talsvert af starfsfólkinu hafi veikst sjálft. Daniele Macchini, læknir við Humanitas Gavazzeni spítalann í Bergamo, skrifaði á Facebook nokkrum áður en útgöngubann var sett á Ítalíu í heild sinni.

„Ástandinu má vel lýsa sem dramatísku. Með látum er skollið á stríð og baráttan er stöðug, dag sem nótt,“ hafði The Guardian eftir Macchini. Lýsingar Rutar, nú nokkrum dögum síðar, eru svipaðar.

Stöðugt væl í sírenum

„Sjúkrahúsið er fullmettað af alvarlega veiku fólki sem þarf súrefni, sem er í einangrun, sem deyr án þess að hafa sína nánustu hjá sér,“ segir Rut.

„Jarðarfarir eru óhugsandi, kistur hrannast upp og aðstandendur standa hjá lamaðir af sorg samblandaða við hræðsluna að smitast. Einu hljóðin sem við heyrum hér í einangruninni heima hjá okkur eru stöðug væl í sírenum sjúkrabílanna, dag og nótt, og við reynum að hugsa ekki um fólkið og söguna á bakvið hvern sjúkrabíl sem brunar hjá.“

Rut segir allt benda til þess að yfirvöld hafi brugðist of seint, sérstaklega í Bergamo. 

Þá kenningu styðja rannsóknargögn vísindamanna við Oxford-háskólann sem báru saman vöxt sýktra í borginni Lodi annars vegar og Bergamo hins vegar miðað við hvenær útgöngubanni var komið á í borgunum tveimur.

Mikilvægi þess að hægja á faraldrinum

Takmörkunum var komið á í Lodi þann 23. febrúar en ekki fyrr en 8. mars í Bergamo. Jenn Dowd, einn rannsakendanna, segir þetta gott dæmi um hvernig tókst að hægja á faraldrinum í Lodi en ekki Bergamo.

Eins og sjá má hefur vöxturinn verið mun meiri í Bergamo en í Lodi þar sem samkomubanni var komið á tæpum tveimur vikum fyrr.Oxford háskóli

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur ítrekað rætt um mikilvægi þess að hægja á faraldrinum hér á landi. Svo að heilbrigðiskerfið hér valdi fjölda smitaðra hverju sinni.

Hér lýsa almannavarnir hvers vegna vilji er til þess að hægja á útbreiðslu veirunnar.Almannavarnir

Skilaboð Rutar, íbúa í Bergamo, sem verið hefur haldið sig innandyra með fjölskyldu sinni eru skýr:

„Í guðanna bænum takið veiruna alvarlega.“


Tengdar fréttir

Þjóðnýta flugfélagið Alitalia

Yfirvöld Ítalíu ætla að þjóðnýta gjaldþrota flugfélagið Alitalia og hafa 600 milljónir evra verið settar til hliðar til að halda rekstri félagsins áfram.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×