Menning

Síðasti bóksölulistinn fyrir jól: Ólafur Jóhann veltir Arnaldi úr hásæti sínu

Jakob Bjarnar skrifar
Birgitta, Arnaldur og Ólafur Jóhann. Fólkið sem er að gera það best í bóksölunni nú þegar jólabókaflóðið er í hámarki. Þau undur og stórmerki urðu þessa vikuna að Ólafur Jóhann hrinti Arnaldi úr toppsætinu en Arnaldur er þó á toppi lista yfir uppsafnaða sölu. Birgitta gerir sér lítið fyrir og er með tvær bækur á aðallistanum.
Birgitta, Arnaldur og Ólafur Jóhann. Fólkið sem er að gera það best í bóksölunni nú þegar jólabókaflóðið er í hámarki. Þau undur og stórmerki urðu þessa vikuna að Ólafur Jóhann hrinti Arnaldi úr toppsætinu en Arnaldur er þó á toppi lista yfir uppsafnaða sölu. Birgitta gerir sér lítið fyrir og er með tvær bækur á aðallistanum.

Bóksala hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en nú.

„Það sætir tíðindum að Snerting, eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, er nú komin í efsta sæti Bóksölulistans. Snerting er hlaðin stjörnum gagnrýnanda, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna á dögunum og hefur setið í öðru sæti Bóksölulistans síðustu tvær vikur,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fibut – sérfræðingur Vísis í bóksölunni.

Já, þetta er í frásögur færandi því Arnaldur Indriðason, sem nú situr í öðru sæti lista vikunnar, hefur einokað toppsætið undanfarin árin.  Í þriðja og fjórða sætinu eru svo glæpasagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson þannig að ekkert lát er á vinsældum krimmans.

Þó Ólafur Jóhann hrifsi nú kórónuna af Arnaldi ber að hafa hugfast að Arnaldur á þó enn mest seldu bók ársins, uppsafnað og það er sá listi sem telur þegar upp er staðið. Engu að síður verður að teljast athyglisverður árangur hjá Ólafi en gaman er að geta þess að hann var í ítarlegu viðtali í höfundatali Vísis um síðustu helgi. Ólafur Jóhann er kominn í annað sæti uppsafnaða listans.

Birgitta lætur að sér kveða

„Það er svo heldur ekki hægt annað en að minnast á Birgittu Haukdal, sem þessa vikuna á þrár barnabækur á toppi metsölulistans, þar á meðal mest seldu barnabók vikunnar, Syngdu með Láru og Ljónsa,“ segir Bryndís. Og sannarlega væri fráleitt að líta hjá þessum árangri. Birgitta hefur slegið í gegn með bókaflokk sinn um Láru og Ljónsa og hefur nú um nokkurra ára skeið sett mark sitt á bóksölulistana. Samanlagt er Birgitta líklega bóksöludrottning ársins.

Birgitta Haukdal hefur átt mikilli velgengni að fagna sem barnabókahöfundur. Hún er með tvær bækur á aðallistanum og líkast til er hún með mestu bóksöluna allra höfunda samanlagt fyrir þetta ár.visir/vilhelm

Bóksölulistinn sem nú birtist er sá síðasti fyrir þessi jólin. Og listarnir sem birtast eru nú ítarlegri en verið hefur, þá til að sýna betur þá miklu útgáfu sem er í ár. Við stækkum bæði skáldverka- og fræðibókalistann úr tuttugu í þrjátíu. Ótrúlega gamlan og fróðlegt er að rýna í þessa lista en eins og fram hefur komið er bóksala nú með allra besta móti. Nú er tími bókarinnar.

Bóksölulisti Fibut sem Vísir birtir jafnan í aðdraganda jóla er unninn út frá sölutölum frá eftirfarandi útsölustöðum bóka; A4, Bóksölu stúdenta, Bónus, Hagkaup, Samkaup verslana, Heimkaup, Forlagsverslunarinnar og Kaupfélags Skagfirðinga – það er í raun frá öllum helstu útsölustöðum bóka á landinu nema frá Eymundsson. Þetta eru listarnir eins og þar stendur. Þessir listar sem nú birtast taka til bóksölu dagana 7.-13. desember 2020.

Skáldverkaútgáfan sjaldan eða aldrei betri

Bryndís bendir á að helmingur, eða tíu af tuttugu mest seldu bókum vikunnar, eru íslensk skáldverk og hefur hlutfall þeirra ekki áður verið svo hátt á þessum árstíma.

„Síðast liðin fimm ár hafa íslensk skáldverk verið að meðaltali um sjö af tuttugu eða 35 prósent og hlutur annarra bókaflokka þá verið meiri, til að mynda ævisagna, sem í ár ná ekki inn á þennan lista.“

Bryndís Loftsdóttir hjá Fibut. Hún segir bóksöluna sjaldan eða aldrei hafa verið eins mikla og núna.

Bókaþjóðin hlýtur að fagna þessu. Skáldverkaútgáfan í ár er með allra mesta móti sem þýðir að jafnvel þótt salan gangi vel, þá dreifist hún á fleiri titla. Því mega höfundar gera ráð fyrir því að eintakasalan slái engin met í ár, jafnvel þótt heildarsala íslenskra bóka sé góð.

„Þó hefur dregið úr þeirri miklu söluaukningu sem mælst hefur frá byrjun nóvember. Salan í síðustu viku var eiginlega á pari við söluna í fyrra, örlítið betri þó. Það þýðir að sú 30 prósentu aukning sem við sáum í sölu íslenskra bóka á þessu tímabili fyrir viku síðan er nú komin niður í rúmlega 17 prósent. Það er engu að síður vegleg söluaukning en segir okkur líka að við séum mun fyrr á ferð með jólagjafakaupin en nokkurn tímann áður,“ segir Bryndís.

Konur aldrei sterkari í bóksölunni

Þá þykist sérfræðingur Vísis greina breytingar í bóksölu sem kynjafræðingar við Háskóla Íslands hljóta að leggjast yfir með glampa í augum.

„Það er áhugavert að skoða kynjaskiptingu íslenskra skáldverkahöfunda eftir sölulistanum,“ segir Bryndís. En konur sækja fram á öllum sviðum bókaútgáfunnar. Þannig eru fleiri konur tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna en karlar auk þess sem sérstök kvennaverðlaun – Fjöruverðlaunin – eru veitt kvenrithöfundum.

„Af tíu mest seldu skáldsögunum eiga karlkyns höfundar helming en svo ekki eina einustu af þeim tíu sem næstar koma. Af 30 mest seldu bókunum eru 11 bækur eða 36.6 prósent eftir karlmenn. Ég á eftir að skoða heildarútgáfuna, hvort þetta rímar við hlutfall útgefinna verka, hvort þetta sé ný þróun eða bara tilfallandi í ár,“ segir Bryndís.

Spænska veikin sjóðheit

Bryndís bendir einnig á að lesa megi tíðindi af fræðibókalistanum. Það eru líka tíðindi af fræðibókalistanum. Þar hefur Spænska veikin hans Gunnars Þórs Bjarnasonar nú skotist á toppinn. 

Gunnar Þór Bjarnason hittir sannarlega beint í mark með vel heppnaðri  bók sinni um Spænsku veikina.Forlagið

En þetta er sæti sem hinn afar vinsæli Óttar Sveinsson með sínar Útkallsbækur hefur nánast getað gengið að vísu mörg mörg undanfarin ár.

„Hann hefur verið vinsæll fræðibókahöfundur, skrifaði meðal annars Upp með fánann og Þegar siðmenningin fór fjandans til. Tæplega hefur hann rennt í grun um hvað viðfangsefni Spænsku veikinnar ætti eftir að hitta í mark, þegar hann hóf undirbúning bókarinnar fyrir fjórum árum síðan.“

Bryndís er þar að vísa til þess að Spænska veikin kallast á við það ástand sem við búum við nú vegna kórónuveirunnar.

„Þær eru margar, sögurnar í þessari bók sem snerta við tilfinningum manns, ekki síst að lesa um náungakærleik, matargjafir, fóstrun og fórnfúsa hjálpsemi blásnauðs almennings, jafnt sem stórmenna á borð við Thor Jensen og Garðar Gíslason. Hin besta aðventuhugvekja.“


Topplistinn

7. - 13. desember 2020

  1. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  2. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  5. Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
  6. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  7. Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
  8. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  9. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  10. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  11. Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
  12. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  13. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  14. Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
  15. Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir
  16. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  17. Dauðabókin - Stefán Máni
  18. Kökur - Linda Ben
  19. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  20. Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir

Íslensk skáldverk

  1. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  2. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  5. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  6. Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
  7. Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
  8. Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir
  9. Dauðabókin - Stefán Máni
  10. Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  11. Yfir bænum heima - Kristín Steinsdóttir
  12. Blóðrauður sjór - Lilja Sigurðardóttir
  13. Blóðberg - Þóra Karítas Árnadóttir
  14. Aprílsólarkuldi - Elísabet Kristín Jökulsdóttir
  15. Konan sem elskaði fossinn : Sigríður í Brattholti - Eyrún Ingadóttir
  16. 107 Reykjavík - Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir
  17. Ein - Ásdís Halla Bragadóttir
  18. Hansdætur - Benný Sif Ísleifsdóttir
  19. Sykur - Katrín Júlíusdóttir
  20. Næturskuggar - Eva Björg Ægisdóttir
  21. Truflunin - Steinar Bragi
  22. Klettaborgin - Sólveig Pálsdóttir
  23. Bróðir - Halldór Armand
  24. Dauði skógar - Jónas Reynir Gunnarsson
  25. Herbergi í öðrum heimi - María Elísabet Bragadóttir
  26. Aðventa - Gunnar Gunnarsson
  27. Aldrei nema kona - Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir
  28. Váboðar - Ófeigur Sigurðsson
  29. Fyrir daga farsímans - Böðvar Guðmundsson
  30. Tengdadóttirin - Guðrún frá Lundi

Íslenskar barna- og ungmennabækur

  1. Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
  2. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  3. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  4. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  5. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  6. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  7. Hetja - Björk Jakobsdóttir
  8. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  9. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  10. Barnaræninginn - Gunnar Helgason
  11. Hestar - Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring
  12. Vampírur, vesen og annað tilfallandi - Rut Guðnadóttir
  13. Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig - Bjarni Fritzson
  14. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal
  15. Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga - Kristín Helga Gunnarsdóttir
  16. Jól með Láru - Birgitta Haukdal
  17. Brandarar og gátur 5 - Huginn Þór Grétarsson
  18. Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin - Yrsa Sigurðardóttir
  19. Iðunn og afi pönk - Gerður Kristný
  20. 13 þrautir jólasveinanna - Huginn Þór Grétarsson

Þýddar barna- og ungmennabækur

  1. Jólaföndur : leikja-, lita og límmiðabók - Bókafélagið
  2. Verstu kennarar í heimi - David Walliams
  3. Jólasyrpa - Walt Disney
  4. Ísskrímslið - David Walliams
  5. Dagbók Kidda klaufa 13 : Snjóstríðið - Jeff Kinney
  6. Jól í Múmíndal - Tove Jansson
  7. Fótbolti - Meistaratatkar - Rob Colson
  8. Ding! Dong! Komum að leika! - Astley Baker
  9. Risaeðlugengið : Kappsundið - Lars Mæhle
  10. Sögutaskan mín - Isabelle Chauvet
  11. Lúkas ljónheppni - Kate Thomson
  12. Mannslíkaminn - Ryan Hobson
  13. Jólaföndur : engin skæri, bara gaman - Unga ástin mín
  14. Töfraeinhyrningurinn hennar Gurru gríss - Astley Baker
  15. Dagbók Kidda klaufa 12 : Flóttinn í sólina - Jeff Kinney
  16. Milljarðastrákurinn - David Walliams
  17. Sögur úr Múmíndal - Tove Jansson
  18. Hundmann 2 - Taumaus - Dav Pilkey
  19. Gurra Grís : leitið og finnið ævintýri - Peppa Pig
  20. Ég njósna með Múmínsnáðnum - Tove Jansson

Fræði og almennt efni

  1. Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
  2. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  3. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  4. Kökur - Linda Ben
  5. Skipulag - Sólrún Diego
  6. Skipulagsdagbók - Sólrún Diego
  7. Íslenskir vettlingar - Guðrún Hannele Henttinen
  8. Þegar heimurinn lokaðist - Davíð Logi Sigurðsson
  9. Kindasögur II - Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson
  10. Hrein Karfa - Kjartan Atli Kjartansson
  11. Bubbi Morthens - ferillinn í fjörtíu ár - Árni Matthíasson
  12. Martröð í Mykinesi - Magnús Þór Hafsteinsson
  13. Bakað með Elenoru Rós - Eleora Rós Georgsdóttir
  14. Fimmaurabrandarar 2 - Fimmaurafélagið
  15. Prjónað á mig og mína - Lene Holme Samsøe
  16. Brimaldan stríða - Steinar J. Lúðvíksson
  17. Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir
  18. Sumac - Þráinn Freyr Vigfússon
  19. Prjónað af ást - Lene Holme Samsøe
  20. Sturlunga geðlæknisins - Óttar Guðmundsson
  21. Björgunarsveitin mín - Arngrímur Hermannsson
  22. Fuglinn sem gat ekki flogið - Gísli Pálsson
  23. Samskipti - Pálmar Ragnarsson
  24. Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi - Bergsveinn Ólafsson
  25. Guðjón Samúelsson húsameistari - Pétur Ármannsson
  26. Þess vegna sofum við : um mikilvægi svefns og drauma - Matthew Walker
  27. Mótorhausasögur - Ragnar S. Ragnarsson
  28. Draumaland : Frá fæðingu til sex ára aldurs - Arna Skúladóttir
  29. Saumaklúbburinn - Berglind Hreiðarsdóttir
  30. Hulduheimar - Símon Jón Jóhannsson

Þýdd skáldverk

  1. Kóngsríkið - Jo Nesbø
  2. Jól í Sumareldhúsi Flóru - Jenny Colgan
  3. Brúðkaup í desember - Sarah Morgan
  4. Silfurvængir - Camilla Läckberg
  5. Þeir sem græta góðu stúlkurnar - Mary Higgins Clark
  6. Lygalíf fullorðinna - Elena Ferrante
  7. Menntuð - Tara Westover
  8. Glæpur við fæðingu - Trevor Noah
  9. Papa - Jesper Stein
  10. Sögur frá Sovétríkjunum - Ýmsir

Ljóð og limrur

  1. 140 vísnagátur - Páll Jónasson
  2. Látra-Björg - Helgi Jónsson
  3. Gervilimrur Gísla Rúnars - Gísli Rúnar Björgvinsson
  4. Innræti - Arndís Þórarinsdóttir
  5. Hetjusögur - Kristín Svava Tómasdóttir
  6. Veirufangar og veraldarharmur - Valdimar Tómasson
  7. Taugaboð á háspennulínu - Arndís Lóa Magnúsdóttir
  8. Draumstol - Gyrðir Elíasson
  9. Ljóðasafn Rumi - Jalaluddin Rumi
  10. Yeats : svipmyndir af lífi og ljóðum - W.B. Yeats

Ævisögur

  1. Herra Hnetusmjör - hingað til - Sóli Hólm
  2. Sögur handa Kára - Ólafur Ragnar Grímsson
  3. Ellert - Ellert B. Schram og Björn Jón Bragason
  4. Dóttir - leið mín til tveggja heimsmeistaratitla - Katrín Tanja Davíðsdóttir og Rory McKiernan
  5. Berskjaldaður : Barátta Einars Þórs fyrir lífi og ást - Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
  6. Vigdís Jack : Sveitastelpan sem varð prestsfrú - Gyða Skúladóttir
  7. Svo týnist hjartaslóð : Þroskasaga Betu Reynis - Valgeir Skagfjörð og Elísabet Reynisdóttir
  8. Brosað gegnum tárin - Bryndís Schram
  9. Fæddur til að fækka tárum - Káinn - Jón Hjaltason
  10. Siddi gull-ævisaga Sigmars Ó. Maríusonar gullsmiðs - Guðjón Ingi Eiríksson

Uppsafnað frá áramótum

  1. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  5. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  6. Útkall á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  7. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  8. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  9. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  10. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×