Golf

Í góðri stöðu til að vinna sitt annað risa­mót að­eins 22 ára gömul

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hinako Shibuno er með fjögurra högga forystu þegar tveimur hringjum er lokið á Opna bandaríska.
Hinako Shibuno er með fjögurra högga forystu þegar tveimur hringjum er lokið á Opna bandaríska. Carmen Mandato/Getty Images

Kylfingurinn sem gengur undir gælunafninu hin Brosmilda Öskubuska hefur svo sannarlega ástæðu til að brosa þegar tveimur hringjum er lokið á Opna meistaramótinu í golfi kvenna megin.

Það er hin Hinako Shibuno sem hefur þetta forvitnilega gælunafn og er þessi 22 ára kylfingur frá Japan með fjögurra högga forystu á mótinu að loknum tveimur hringjum. Hún hefur því virkilega góða ástæðu til þessa að brosa í dag þar sem hún nálgast nú sinn annan risatitil í golfi.

Shibuno fór annan hring mótsins - sem fer fram á Champions Golf Club´s Jackrabbit-vellinum að þessu sinni - á fjórum höggum undir pari vallarins og er því samtals á sjö höggum undir pari fyrir þriðja dag mótsins. Er hún þremur höggum á undan næsta kylfingi.

Shibuno fékk sex fugla á hringnum í gær en tvo skolla. Hún sagði eftir á að upphafshögg hennar hefðu endað full oft út af braut en seinni skotin hafi verið góð og komið henni í góða stöðu.

Swedish amateur Linn Grant, a sophomore at Arizona State University, opened with back-to-back 69s to secure solo second. Another amateur follows her on the leaderboard, as University of Texas senior Kaitlyn Papp is tied for third at -3. She is joined by two LPGA Tour players looking for their first victories in Megan Khang and first-round leader Amy Olson. Olson followed her first-round 67 with a 1-over 72 on the Jackrabbit Course on Friday, while Khang shot a bogey-free 2-under 69 on the Cypress Creek Course.

Hin sænska Linn Grant er í öðru sæti á fjórum höggum undir pari og þá eru þrír kylfingar jafnir í þriðja sæti. Kaitlyn Papp – sem er áhugakylfingur líkt og Grant – er þar ásamt Megan Khang og Amy Olson.


Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×