Gular viðvaranir um nánast allt land vegna snjókomu og storms Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 07:14 Það verða gular viðvaranir í gildi um nánast allt land í kvöld og fram á nótt eða þar til í fyrramálið. Vísir/Hanna Gular viðvaranir taka gildi á öllu landinu í kvöld fyrir utan höfuðborgarsvæðið, Norðurland eystra og Austurland að Glettingi. Varað er við hvassviðri eða stormi með ofankomu og má búast við 15 til 23 metrum á sekúndu með snjókomu og síðar slyddu.
Viðvaranirnar gilda fram á nótt á Suðurlandi, Breiðafirði og Faxaflóa en á Suðausturlandi og Austfjörðum þar til annars vegar klukkan sex í fyrramálið og hins vegar til klukkan sjö. Þá er viðvörun jafnframt í gildi til klukkan sex í fyrramálið á Miðhálendinu, til klukkan fimm í fyrramálið á Vestfjörðum og til klukkan 4:30 í fyrramálið á Ströndum og Norðurlandi vestra. „Suðaustan 15-23 með snjókomu og síðar slyddu. Fer síðan yfir í rigningu um nóttina. Erfið akstursskilyrði,“ segir á viðvörunarvef Veðurstofunnar um þessar gulu viðvaranir. Í dag verður hins vegar hæglætisveður á landinu, dálítil él norðantil framan af degi en annars víða bjart að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. „Eftir hádegi kemur lítið lægðardrag upp að suðausturströndinni með snjókomu á Suðausturlandi og á Austfjörðum. Vaxandi suðaustanátt seinnipartinn, 15-20 m/s og snjókoma suðvestantil í kvöld, en síðar slydda og rigning eftir því sem hlýnar í kvöld og nótt. Skilin ganga yfir landið í kvöld og nótt með hvassviðri og snjókomu í flestum landshlutum og gular við varanir eru í gildi á öllu landinu að Norðurlandi Eystra og Austurlandi að Glettingi undanskildum. Í fyrramálið snýst síðan í allhvassa suðvestanátt með skúrum og hægt kólnandi veðri. Um miðja vikuna snýst í norðanátt með snjókomu norðantil og kólnandi veðri um allt land,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Hæg breytileg átt, en norðvestan 5-13 m/s á Austfjörðum fram að hádegi. Lítilsháttar él norðantil, annars bjart með köflum, en snjókoma suðaustantil seinnipartinn. Frost 0 til 4 stig. Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og hlýnar seint í dag, 10-20 í kvöld og snjókoma en síðar slydda, hvassast með suðurströndinni. Fer að rigna í nótt, fyrst suðvestantil. Snýst í suðvestan 13-20 með skúrum, en léttir til norðaustanlands. Hiti 2 til 7 stig, en kólnar annað kvöld. Á þriðjudag (fullveldisdagurinn): Allhvöss eða hvöss sunnan- og síðar suðvestanátt með rigningu og hita 1 til 8 stig, mildast með suðurströndinni. Kólnar smám saman síðdegis með skúrum eða éljum, en léttir til norðaustanlands. Á miðvikudag: Allhvöss eða hvöss norðanátt og snjókoma norðantil, en heldur hægari vindur og víða él syðra. Frost 0 til 8 stig. Á fimmtudag: Útlit fyrir allhvassa norðnátt og snjókomu, en úrkomulítið sunnan heiða. Frost 4 til 12 stig, kaldast in til landsins. Á föstudag: Minnkandi norðanátt og snjókoma norðantil, en bjartviðri sunnanlands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira