Atvinnulíf

„Alltaf kem ég heim eins og nýhreinsaður hundur á sál og líkama“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Helgi Jóhannsson og Sámur.
Helgi Jóhannsson og Sámur. Vísir/Vilhelm

Helgi Jóhannsson klæðist alltof stórum joggingbuxum þegar hann fer út að ganga með hundana á morgnana. Þessar buxur segir hann vera slysakaup á netinu. Helgi er gestur kaffispjallsins að þessu sinni.

Helgi Jóhannsson yfirlögfræðingur Landsvirkjunar viðurkennir að joggingbuxurnar sem hann klæðist í á morgungöngu með hundana séu algjör slysakaup á netinu. Helgi þolir ekki að vera á síðustu stundu með verkefni í vinnunni og segist ekki ætla að ljúga einhverju um að það sé bókmenntalegt stórvirki eða stjórnendabækur á náttborðinu hjá honum. Því þar er það iPadinn og til viðbótar við útivistarfíknina segist Helgi háður Storytel.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna alltaf um klukkan sex. Hef alltaf verið mikill morgunhani allt frá því ég var barn. Í próflestri í gamla daga var ég til dæmis sestur við upp úr sjö á morgnana, en á móti er ég handónýtur að einbeita mér mikið eftir kvöldmat. Sem sagt ultra A týpa.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Þar sem nánast enginn er á ferli klukkan sex á morgnana byrja ég á að klæða mig í fremur ósmekklegar, allt of stórar joggingbuxur sem eru slysakaup á netinu, dúnúlpu og húfu og fer út að labba með tvo hunda sem við erum með.

Í seinni tíð, eftir að ég varð háður Storytel, treð ég líka heyrnatólum í eyrun og hlusta á einhverja bók meðan á þessum göngutúr stendur. Þvílík snilld sem þetta er. Fá ferskt loft í lungun, hlusta á eitthvað gott og hreyfa sig í leiðinni. Hundarnir fá oft aukalabb ef það er eitthvað spennandi að gerast í bókinni.

Stundum kemur fyrir að ég skokki með syni mínum nokkra kílómetra í stað göngutúrsins, en þá hlusta ég frekar á tónlist en sögu. Ég er enginn hlaupari í mér en þetta er fín brennsla og góð samvera hjá okkur feðgunum.

Eftir hreyfinguna er það sturta og hafragrautur með niðursneiddum eplum, rúsínum og kanel. Sakna alltaf þessa einfalda morgunverðar þegar ég gisti á hótelum hérlendis og erlendis.“

Er hægt að verða háður útivist?

„Já það er svo sannalega hægt að vera háður útivist. Ég er orðinn þannig í seinni tíð að ég fæ hreinlega óþol í sál og líkama ef ég kemst ekki út í náttúruna nokkrum sinnum í viku. Mitt uppáhald er að fara í fjallgöngur, á fjallaskíði, gönguskíði, eða að hjóla. Ég kann ekkert í golfi en hef prufað og ég náði hvorki árangri né nokkurri tengingu við það.

Það bregst ekki að sama hvað ég fer hornóttur og ómögulegur af stað í útivistina. Alltaf kem ég heim eins og nýhreinsaður hundur á sál og líkama. Þetta er klárlega fíkn, geggjuð fíkn sem gott er og auðvelt að verða háður.

Ég held að ég myndi aldrei geta þrifist í stórborg til lengdar þar sem það tekur óratíma að komast upp í sveit. Hér á landi er þetta allt svo einfalt og gott, steinsnar þangað sem enginn annar er og maður getur verið ótruflaður af borgarsuði. Sannkölluð lífsgæði.“

Helgi viðurkennir að útivistin sé eins og fíkn og upplifir hreinlega óþol ef hann kemst ekki út í náttúruna nokkrum sinnum í viku. Sámur er sammála.  Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Við hjá Landsvirkjun erum náttúrulega í þeim „business“ að framleiða og selja rafmagn. Samningar og ýmiss konar samskipti við viðskiptavini fyrirtækisins eru því oft á borðum okkar lögfræðinganna auk þess sem ýmiss konar innri málefni fyrirtækisins rata einnig til okkar. Trúnaður ríkir um samninga fyrirtækisins og samskipti við viðskiptavini þess og þess vegna er kannski ekki við hæfi að úttala sig mikið í svona viðtali um nákvæmlega hvaða verkefnum ég er að vinna í akkúrat núna.

Eitt get ég þó sagt. Það er ótrúlega margt og mismunandi sem rekur á fjörur lögfræðideildar Landsvirkjunar, enda fyrirtækið stórt, miklir hagsmunir í húfi og starfsstöðvar víða.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Þar sem ég fer snemma á fætur mæti ég snemma í vinnu, yfirleitt upp úr klukkan sjö. Þá gefst tími til að einbeita sér, en eftir að argaþras dagsins byrjar gefst oft lítill tími til slíks vegna funda og símtala.

Ég skipulegg vinnu mína ávallt þannig að ég lendi ekki í tímaþröng með verkefni. Ég þoli ekki þegar tíminn í upphafi verkefnis er illa nýttur þannig að allt þarf að gerast með miklum hvelli á síðustu stundu. Þá er mest hætta á mistökum eða annars konar klúðri.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég er alltaf rosa sybbinn á kvöldin og er oftast kominn í rúmið um tíu leytið. Ég þykist þá oft ætla að hlusta áfram á sögu eða lesa eitthvað, en yfirleitt líða ekki nema fimm mínútur þangað til ég er kominn í draumalandið.

Ef ég yrði spurður í svona viðtali hvaða bók sé á náttborðinu myndi ég fúslega viðurkenna að hún heitir Ipad. Ég myndi ekki einu sinni reyna að ljúga því að fólki, eins og flestir gera, að einhver bókmenntaleg stórvirki eða magnaðar stjórnendabækur lægju þar.“


Tengdar fréttir

Er stundum morgunfúl en dreymir um að vakna eldhress

Rósa Guðný Þórsdóttir leikkona og leikstjóri er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hún viðurkennir að vera stundum morgunfúl en dreymir um að vakna eldhress á morgnana og dansa fram í eldhús.

„Allt of mikill tími í þinginu sem fer í ekki neitt“

Þorsteinn Víglundsson segir þrjá espresso þurfa alla morgna til að rífa sig í gang. Honum leiðist tímasóun og segir hana of mikla á þingi. Að sitja á þingi sé þó mikill heiður. Í forstjórastarfinu í dag eru það hins vegar umhverfismálin sem eru hvað brýnust.

Umdeilt hversu handlaginn forstjórinn er heima fyrir

Árni Stefánsson forstjóri Húsasmiðjunnar er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hann segir umdeilanlegt hversu handlaginn hann er heima fyrir en viðurkennir að vera mikill tækjakarl sem reddar sér með gúggli.

„Maður er nú bara að reyna að komast í gegnum þetta Covid“

Í fyrra veiddust hvorki fleiri né færri en átta Maríulaxar í einni kvennaferð segir Lilja Bjarnadóttir kaupmaður í Levi's á Íslandi og formaður kvennanefndar SVFR. Þessar vikurnar fara helst í að koma rekstrinum í gegnum Covid. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×