Sextán ára gugusar kemur fram á Off-Venue tónleikum Landsbankinn 12. nóvember 2020 16:38 gugusar er annað sjálf Guðlaugar Sóleyjar Höskuldsdóttur en hún kemur fram á Off-Venue tónleikum Landsbankans. gugusar er annað sjálf Guðlaugar Sóleyjar Höskuldsdóttur sextán ára tónlistarmanns sem sló í gegn á Músíktilraunum í fyrra þar sem hún var útnefnd rafheili hátiðarinnar. gugusar kemur fram á Off-Venue tónleikum Landsbankans sem eru nú þegar aðgengilegir hér. Sjálf hátíðin Live from Reykjavík, hefst á morgun. „Þetta er líklega mitt stærsta gigg til þessa, Ég tek tvö lög, með Sólrúnu Mjöll trommara með mér,“ segir gugusar. Hún semur lögin sín ein inni í herbergi og finnst best að geta ráðið öllu sjálf. „Það er svo þægilegt að gera þetta bara nákvæmlega eins og ég vil. Mér finnst skemmtilegast að semja texta sem hafa fleiri en eina merkingu. Þannig getur fólk túlkað lögin á sinn hátt. Stundum byrja ég á trommum í tölvunni og stundum sem ég á gítar. Ég kann samt ekkert á gítar, ég finn bara út úr öllum hljóðfærum og færi svo yfir í tölvuna og vinn lögin þar,“ segir gugusar en hún stundar söng- og trommunám í Tónlistarskóla FÍH. Fékk undanþágu á tónleika Injury Reserve „Ég á mismunandi fyrirmyndir og flokka yfirleitt ekki tónlist. Minn helsti innblástur er samt rapphljómsveitin Injury Reserve. Þeir komu á Airwaves 2018 og ég fór að gráta þegar ég sá það, mig langaði svo að fara en ég var of ung, 14 ára. Ég sendi póst á Airwaves og fékk undanþágu til að mæta á tónleikana með systur minni. Það var frábær upplifun. Þá datt mér í hug að prófa að semja sjálf og þannig byrjaði þetta. Það er Injury Reserve að þakka að ég er sjálf að spila á Airwaves.“ Fjöldi tónlistarmanna kemur fram á Off-Venue Off-Venue tónleikarnir eru ómissandi hluti Iceland Airwaves og þekktir fyrir öðruvísi og hrárri stemmingu og meiri nánd. Tónlistarhátíðin verður með öðru sniði í ár og send beint út á Rúv og Rás 2 hér á Íslandi. Landsbankinn býður upp á Off-Venue tónlistarveislu þar sem eftirfarandi listamenn koma fram. JóiPé & Króli JóiPé & Króli taka lögin Geimvera og On af plötunni Um miðjan kjarnorkuvetri, sem kom út í vor. Moses Hightower Hljómsveitin Moses Hightower tekur lögin Stundum og Framkvæmdir af plötunni Lyftutónlist, sem kom út núna í haust. BSÍ Hljómsveitin BSÍ tekur lögin Ekki á leið og Tal 11. Sykur Hljómsveitin Sykur tekur lögin Svefneyjar og Lost Song af plötunni JÁTAKK sem kom út i fyrra. Landsbankinn hefur verið styrktaraðili Iceland Airwaves frá 2014. Á hverju ári hefur Landsbankinn framleitt tónlistarmyndbönd með upprennandi listafólki, alls 23 tónlistarmönnum og hljómsveitum, sem finna má á Airwaves vef Landsbankans. Tónlist Airwaves Menning Tengdar fréttir Off-Venue: Mikilvægt að geta horft og tekið inn Icelandic Airwaves: Live from Reykjavík hefst í dag. Off-Venue tónleikarnir eru ómissandi hluti hátíðarinnar. 13. nóvember 2020 13:58 Mest lesið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Bein útsending: Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins Lífið Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Lífið Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Spennan magnast í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum! Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Bjargvættur fyrir þurrt og þreytt hár Svefninn mun dýpri og betri með tilkomu Neubria Sleep Stórkostleg áhrif á fíngert hár Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið Þetta eru snyrtivörurnar sem skipta mestu máli Troðfullt á fermingarkvöldi Hagkaups Páskaegg fyrir sanna bragðarefi Askja frumsýnir nýjan og enn glæsilegri Mercedes-Benz EQB Litlu hlutirnir sem geta skipt sköpum Topp tíu listi yfir nauðsynlegar skíðavörur „Femarelle það eina sem hefur virkað fyrir mig“ Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku Topp tíu listi yfir förðun og húðumhirðu fyrir ferminguna Saltblár er litur ársins hjá KitchenAid Spretthlaup frá grænmetisdeildinni niður í leikfangadeild Spennandi snúningur á ljúffengri klassík Sjá meira
gugusar er annað sjálf Guðlaugar Sóleyjar Höskuldsdóttur sextán ára tónlistarmanns sem sló í gegn á Músíktilraunum í fyrra þar sem hún var útnefnd rafheili hátiðarinnar. gugusar kemur fram á Off-Venue tónleikum Landsbankans sem eru nú þegar aðgengilegir hér. Sjálf hátíðin Live from Reykjavík, hefst á morgun. „Þetta er líklega mitt stærsta gigg til þessa, Ég tek tvö lög, með Sólrúnu Mjöll trommara með mér,“ segir gugusar. Hún semur lögin sín ein inni í herbergi og finnst best að geta ráðið öllu sjálf. „Það er svo þægilegt að gera þetta bara nákvæmlega eins og ég vil. Mér finnst skemmtilegast að semja texta sem hafa fleiri en eina merkingu. Þannig getur fólk túlkað lögin á sinn hátt. Stundum byrja ég á trommum í tölvunni og stundum sem ég á gítar. Ég kann samt ekkert á gítar, ég finn bara út úr öllum hljóðfærum og færi svo yfir í tölvuna og vinn lögin þar,“ segir gugusar en hún stundar söng- og trommunám í Tónlistarskóla FÍH. Fékk undanþágu á tónleika Injury Reserve „Ég á mismunandi fyrirmyndir og flokka yfirleitt ekki tónlist. Minn helsti innblástur er samt rapphljómsveitin Injury Reserve. Þeir komu á Airwaves 2018 og ég fór að gráta þegar ég sá það, mig langaði svo að fara en ég var of ung, 14 ára. Ég sendi póst á Airwaves og fékk undanþágu til að mæta á tónleikana með systur minni. Það var frábær upplifun. Þá datt mér í hug að prófa að semja sjálf og þannig byrjaði þetta. Það er Injury Reserve að þakka að ég er sjálf að spila á Airwaves.“ Fjöldi tónlistarmanna kemur fram á Off-Venue Off-Venue tónleikarnir eru ómissandi hluti Iceland Airwaves og þekktir fyrir öðruvísi og hrárri stemmingu og meiri nánd. Tónlistarhátíðin verður með öðru sniði í ár og send beint út á Rúv og Rás 2 hér á Íslandi. Landsbankinn býður upp á Off-Venue tónlistarveislu þar sem eftirfarandi listamenn koma fram. JóiPé & Króli JóiPé & Króli taka lögin Geimvera og On af plötunni Um miðjan kjarnorkuvetri, sem kom út í vor. Moses Hightower Hljómsveitin Moses Hightower tekur lögin Stundum og Framkvæmdir af plötunni Lyftutónlist, sem kom út núna í haust. BSÍ Hljómsveitin BSÍ tekur lögin Ekki á leið og Tal 11. Sykur Hljómsveitin Sykur tekur lögin Svefneyjar og Lost Song af plötunni JÁTAKK sem kom út i fyrra. Landsbankinn hefur verið styrktaraðili Iceland Airwaves frá 2014. Á hverju ári hefur Landsbankinn framleitt tónlistarmyndbönd með upprennandi listafólki, alls 23 tónlistarmönnum og hljómsveitum, sem finna má á Airwaves vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur verið styrktaraðili Iceland Airwaves frá 2014. Á hverju ári hefur Landsbankinn framleitt tónlistarmyndbönd með upprennandi listafólki, alls 23 tónlistarmönnum og hljómsveitum, sem finna má á Airwaves vef Landsbankans.
Tónlist Airwaves Menning Tengdar fréttir Off-Venue: Mikilvægt að geta horft og tekið inn Icelandic Airwaves: Live from Reykjavík hefst í dag. Off-Venue tónleikarnir eru ómissandi hluti hátíðarinnar. 13. nóvember 2020 13:58 Mest lesið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Bein útsending: Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins Lífið Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Lífið Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Spennan magnast í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum! Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Bjargvættur fyrir þurrt og þreytt hár Svefninn mun dýpri og betri með tilkomu Neubria Sleep Stórkostleg áhrif á fíngert hár Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið Þetta eru snyrtivörurnar sem skipta mestu máli Troðfullt á fermingarkvöldi Hagkaups Páskaegg fyrir sanna bragðarefi Askja frumsýnir nýjan og enn glæsilegri Mercedes-Benz EQB Litlu hlutirnir sem geta skipt sköpum Topp tíu listi yfir nauðsynlegar skíðavörur „Femarelle það eina sem hefur virkað fyrir mig“ Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku Topp tíu listi yfir förðun og húðumhirðu fyrir ferminguna Saltblár er litur ársins hjá KitchenAid Spretthlaup frá grænmetisdeildinni niður í leikfangadeild Spennandi snúningur á ljúffengri klassík Sjá meira
Off-Venue: Mikilvægt að geta horft og tekið inn Icelandic Airwaves: Live from Reykjavík hefst í dag. Off-Venue tónleikarnir eru ómissandi hluti hátíðarinnar. 13. nóvember 2020 13:58