Handbolti

Birna Berg ánægð í Eyjum og útilokar ekki að byrja aftur í fótbolta

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Birna Berg Haraldsdóttir segir líklegra en ekki að hún sé komin heim fyrir fullt og allt.
Birna Berg Haraldsdóttir segir líklegra en ekki að hún sé komin heim fyrir fullt og allt. vísir/vilhelm

Birna Berg Haraldsdóttir, landsliðskona í handbolta, sneri aftur til Íslands í sumar eftir sjö ár í atvinnumennsku og gekk í raðir ÍBV.

Henry Birgir Gunnarsson fór til Vestmannaeyja á dögunum og ræddi m.a. við Birnu. Afraksturinn var sýndur í Seinni bylgjunni í gær.

„Þetta var mjög erfið ákvörðun og tók rosa langan tíma að taka hana,“ sagði Birna um aðdraganda heimkomunnar. „ÍBV hafði samband við mig í nóvember en ég held að ég hafi ekki gefið þeim svar fyrr en í apríl. Mig langaði að vera áfram úti en þetta voru sjö fín ár úti og fínt að koma heim og reyna að taka titla.“

Birna lék síðast með Neckalsulmer í Þýskalandi og átti möguleika á að vera áfram þar í landi.

„Ég var að skoða þrjú lið í Þýskalandi en þegar á tímann leið langaði mig að koma heim og ég sé ekki eftir því,“ sagði Birna. Hún segir líklegt að hún sé komin heim fyrir fullt og allt þótt hún sé ekki búin að loka dyrunum á atvinnumennskuna.

„Ég myndi alltaf skoða það en ég er búin að flytja það mikið síðustu sjö ár að ég veit ekki hvort ég nenni að drösla enn einum gámnum út. Ég held að ég sé kominn heim til að vera en ef eitthvað kemur upp myndi ég alltaf skoða það.“

Birna þekkir vel til í Eyjum, á ættir að rekja þangað og lék með fótboltaliði ÍBV sumarið 2011.

„Einhvern veginn vissi ég að ég myndi koma aftur, sérstaklega eftir að Sunna [Jónsdóttir] kom. Við erum búnar að vera vinkonur lengi og spila saman. Að koma heim var erfið ákvörðun en hvert ég myndi fara var ekki jafn erfið,“ sagði Birna sem var gríðarlega efnilegur markvörður í fótbolta á sínum tíma og lék fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands. Hún segir að fótboltinn togi enn í sig.

„Ég er búin að mæta á nokkra leiki og hitta gamla þjálfarann minn. Og ég á enn takkaskó þannig að það er aldrei að vita hvort maður mæti. Ekki þennan vetur en auðvitað kitlar það mikið og mér finnst enn ógeðslega gaman í fótbolta og hugsa stundum hvað hefði gerst ef ég hefði valið hann. En ég held að ég hafi valið rétt að lokum,“ sagði Birna.

Klippa: Seinni bylgjan - Viðtal við Birnu Berg

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×