Gul viðvörun á Norðurlandi eystra og vonskuveður á leiðinni fyrir austan Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 2. nóvember 2020 06:35 Veðurstofan gerir ráð fyrir að á Austfjörðum geti samgöngur farið úr skorðum í nótt og á morgun. Vísir/Hanna
Gul viðvörun tók gildi klukkan sjö í morgun á Norðurlandi eystra og önnur slík fer í gildi klukkan ellefu á miðhálendinu. Á Norðurlandi er spáð vestan hvassviðri eða stormi þar sem vindur verður 15 til 23 metrar á sekúndu með éljum og hvössum vindstrengjum við fjöll. Þar geta hviður farið í þrjátíu metra á sekúndu. Þá má búast við lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum á fjallvegum á svæðinu. Á miðhálendinu er síðan spáð vestan og norðvestan 15 til 23 metrum á sekúndu en þar verður hvassara við fjöll og vinhviður gætu farið í allt að fjörutíu metra á sekúndu. Á Norðurlandi eystra verður viðvörunin í gildi fram til klukkan tíu í kvöld en á miðhálendinu rennur hún út klukkan sex síðdegis miðað við spár. Þá tekur gul viðvörun gildi á Austfjörðum í nótt, eða klukkan tvö en þar er spáð norðvestan stormi eða roki, 18 til 28 metrum á sekúndu. Þar er einnig búist við hvössum og varhugaverðum vindhviðum við fjöll sem gætu farið allt í 45 metra á sekúndu. Líklegt er að samgöngutruflanir verði á svæðinu og ekkert ferðaveður á meðan viðvörunin er í gildi en hún á ekki að renna út fyrr en klukkan tíu annað kvöld. „Nauðsynlegt er að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón og er fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Veður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Sjá meira