Erlent

Varaforsetinn endurflutti lygar forsetans

Samúel Karl Ólason skrifar
Kamala Harris og eiginmaður hennar heilsa Mike Pence og eiginkonu hans við upphaf kappræðanna.
Kamala Harris og eiginmaður hennar heilsa Mike Pence og eiginkonu hans við upphaf kappræðanna. AP/Patrick Semansky

Þótt kappræður Mikes Pence, varaforseta Bandaríkjanna, og Kamölu Harris, varaforsetaframbjóðanda Demókrata, hafi ekki verið jafn óreiðukenndar og fyrstu kappræður Donalds Trump forseta og Joes Biden, forsetaframbjóðanda Demókrata, voru samt stjórnmálamenn á sviðinu. Vanir stjórnmálamenn sem beygðu sannleikann, og það jafnvel töluvert, og komu sér undan því að svara spurningum.

Hér að neðan verður stiklað á stóru yfir það helsta sem var ósatt í kappræðunum. Margt af því sneri að heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar og ljóst er að Pence sagði mun oftar ósatt en Harris. Mörg þeirra ósanninda eiga rætur sínar í ummælum Trump.

Sjá einnig: „Snjóflóð“ lyga frá forsetanum

Ósannindi og ýkjur Harris voru þar að auki oft af öðrum toga en oft blákaldar lygar Pence.

Covid-19 fyrirferðarmikill

Pence byrjaði á því að tala um meint „bann“ Trumps við fólksflutningum frá Kína í upphafi faraldursins. Hann sagði það hafa gefið Bandaríkjunum mikinn og mikilvægan tíma til undirbúnings og mögulega bjargað fjölda lífa. Þetta hefði verið einstök aðgerð á heimsvísu.

Pence sagði einnig að Biden hefði verið andsnúinn því banni og að hann hefði kallað það rasískt.

Skipun Trump stöðvaði alls ekki fólksflutninga frá Kína. Hún takmarkaði hann. Tugir þúsunda flugu frá Kína til Bandaríkjanna á næstu dögum og vikum í kjölfar skipunarinnar og flestir þeirra án nokkurs eftirlits eða skimunar. AP fréttaveitan segir minnst átta þúsund Kínverja hafa ferðast frá Kína til Bandaríkjanna á næstu þremur mánuðum.

Þar að auki gripu fjölmörg ríki heimsins til sambærilegra aðgerða.

Pence sagði að þessi skipun hefði gefið ríkisstjórn þeirra mikilvægan tíma. Það gæti verið rétt en útlit er þó fyrir að sá tími hafi verið verulega vannýttur.

Um tveir mánuðir liðu frá því að Bandaríkjastjórn fékk fyrstu upplýsingarnar um kórónuveiruútbreiðslu í Kína janúar þar til alríkisstjórnin greip til umtalsverðra aðgerða til að hefta útbreiðsluna.

Pence sagði einnig ósatt um viðbrögð Biden við „banninu“ eins og Trump-liðar hafa lengi gert.

Ummæli Biden sem Trump-liðar hafa bent á, snerust ekki um bannið svokallaða, heldur var Biden að saka Trump um rasisma, almennt og í tengslum við að hann kallaði Covid-19 „Kínaveiruna“. Samkvæmt framboði Biden vissi hann ekki af banninu þegar hann lét ummælin falla.

Þetta var í lok janúar en í apríl tók Biden formlega afstöðu með banninu og sagðist hann styðja það.

Laug um að Trump hefði ávallt sagt satt

Pence varpaði einnig fram þeirri skringilegu staðhæfingu að Trump hafi ávallt sagt Bandaríkjamönnum sannleikann um Covid. Sú staðhæfing er skringileg því Trump hefur sagt tugi ef ekki hundruð ósanninda um faraldur nýju kórónuveirunnar.

Daniel Dale, blaðamaður CNN, sem hefur um árabil farið yfir ummæli Trumps og annarra og kannað sannleiksgildi þeirra, fór yfir kappræðurnar í gær.

Forsetinn hefur sömuleiðis minnst einu sinni viðurkennt að hafa sagt Bandaríkjamönnum ósatt um veiruna. Það gerði hann í viðtali við blaðamanninn Bob Woodward.

Trump gekkst við því í síðasta mánuði að hafa vísvitandi gert lítið úr kórónuveirufaraldrinum í upphafi. Markmiðið hafi verið að forðast skelfingu.

Pence gagnrýndi Biden fyrir viðbrögð ríkisstjórnar hans og Barack Obama, fyrrverandi forseta, við útbreiðslu svínaflensunnar árið 2009. Hann sagði að 60 milljónir manna hafa smitast þá og að ef Biden væri forseti nú hefðu minnst tvær milljónir Bandaríkjamanna dáið.

Þarna er hann að bera saman tvo ósambærilega sjúkdóma. Þar sem svínaflensan var ekki nærri því jafn hættuleg og Covid-19 var ekki þörf á að grípa til verulegra aðgerða til að sporna gegn dreifingu sjúkdómsins. Eins og bent er á í grein Washington Post er áætlað að 60 milljónir hafi smitast og 12.500 dáið.

Þær tölur byggja á áralöngum tölfræðirannsóknum og svokölluðum umframdauðsföllum. Það er þegar fjöldi dauðsfalla á tilteknu tímabili er borinn saman við meðaltal síðustu ára.

Á sínum tíma voru skráð dauðsföll vegna svínaflensunnar mun færri en 12.500. Þar að auki hafa sérfræðingar varað við því að það sama sé að gerast nú. Að seinna meira gætu opinberar tölur yfir látna hækkað og það verulega.

Fjölmargir veikir eftir viðburð

Pence hélt því einnig fram að sóttvarnarviðmiðum og ráðleggingum hefði verið fylgt eftir á viðburði í Hvíta húsinu þann 26. september, sérstaklega með tilliti til þess að viðburðurinn hefði verið utandyra.

Fjölmargir þeirra sem sóttu viðburðinn hafa greinst með Covid-19, þar á meðal Donald Trump, forseti. Rúmlega 150 manns sóttu viðburðinn og komu þau víðsvegar að. Myndir frá viðburðinum sýna fjölda grímulausra manna kyssast og faðmast og þar að auki fór stór hluti viðburðarins fram innandyra.

Harris sakaði Trump um að hafa kallað faraldur nýju kórónuveirunnar gabb í febrúar. Hann gerði það að vissu leyti en þar skortir samhengi.

Á kosningafundi 28. febrúar sagði Trump að Demókratar væru að spila pólitíska leiki með faraldurinn og þetta væri nýja „gabbið“ þeirra. Hann sagði það sama um ákæruna fyrir embættisbrot og Rússarannsóknina svokölluðu og var ekki að vísa til faraldursins.

Þess í stað var hann að vísa til gagnrýni Demókrata á hans viðbrögð og aðgerðir.

Sérfræðingar færðir í starfi

Harris sagði Trump einnig hafa fellt niður sérstakt faraldurs-viðbragðsteymi Hvíta hússins sem stofnað var í kjölfar ebólufaraldursins 2014.

Ráðið sjálft var í raun fellt niður en flestir meðlimir þess voru færðir í aðrar stöður í Hvíta húsinu. Það er alfarið óljóst hvort það að halda ráðinu heilu hefði bætt viðbrögð bandarískra stjórnvalda.

Gömul ósannindi endursögð

Pence endurtók einnig margar gamlar og ósannar fullyrðingar Trump-liða. Þar má nefna það að Demókratar ætli sér að hækka skatta á alla Bandaríkjamenn og banna olíuvinnslu og notkun jarðeldsneytis í Bandaríkjunum.

Sömuleiðis fullyrðingar um að ríkisstjórn Obama hafi gefið Íran 1,8 milljarð dala, að póstatkvæði leiði til umfangsmikilla kosningasvika og að Robert Mueller hafi ekki fundið saknæmt athæfi í rannsókn sinni. 

Einnig að Demókratar styðji fóstureyðingar allt fram að fæðingu og að ríkisstjórn Obama hafi tæmt birgðastöðvar hins opinbera vegna faralda.


Tengdar fréttir

Biden vex ásmegin í könnunum

Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, hefur vaxið ásmegin í skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið í kjölfar kappræðna hans og Donalds Trump, forseta.

Kamala gerir gæfumuninn, segir Magnús sem spáði rétt 2016

Magnús Ólafsson sá fyrir sigur Trump á sínum tíma. Hann rýnir nú í stöðuna fyrir Vísi og greinir. Lesturinn gæti reynst huggun þeim sem hafa áhyggjur af öðrum fjórum árum með Trump í stóli forseta Bandaríkjanna.

„Snjóflóð“ lyga frá forsetanum

Frammistöðu Trumps hefur verið líkt við framgöngu hans á kosningafundum hans, þar sem forsetinn hefur sjaldan látið sannleikann standa í vegi fyrir sér.

Framíköll, óreiða og deilur einkenndu kappræðurnar

Fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fóru fram í Cleveland í nótt. Kappræðurnar einkenndust af framíköllum og deilum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×