Íslenski boltinn

Sjáðu þrumu­fleyg Fred og dramatíkina í Eyjum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Eyjamenn fagna sigurmarkinu.
Eyjamenn fagna sigurmarkinu. mynd/skjáskot

ÍBV er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir 2-1 sigur á Fram í Vestmannaeyjum í gærkvöldi.

Frederico Bello Saraiva, betur þekktur sem Fred, kom Fram yfir á 20. mínútu með ansi laglegu marki.

Framarar leiddu í hálfleik en Eyþór Daði Kjartansson jafnaði metin eftir klukkutímaleik.

Það var svo í uppbótartíma sem annar Eyjamaður, Róbert Aron Eysteinsson, skoraði og tryggði ÍBV sæti í undanúrslitin.

Eyjamenn eru fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitunum en hinar viðureigninnar eru á milli FH og Stjörnunnar, Breiðablik og KR og Valur og HK.

Klippa: ÍBV - Fram 0-1
Klippa: ÍBV - Fram 1-1
Klippa: ÍBV - Fram 2-1



Fleiri fréttir

Sjá meira


×