Einn fundinn sekur um morðið á Hariri Atli Ísleifsson skrifar 18. ágúst 2020 13:56 Rafik Hariri var forsætisráðherra Líbanons á árunum 1992 til 1998 og aftur frá 2000 til 2004. Getty
Sérstakur dómstóll, sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna, hefur sakfellt einn af þeim fjórum sem ákærðir voru fyrir aðild að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í Beirút árið 2005. Salim Ayyash og hinir þrír, voru allir liðsmenn Hezbollah-hreyfingarinnar og hefur verið réttað yfir þeim í þeirra fjarveru frá árinu 2014, að því er fram kemur í frétt BBC. Morðið á Hariri vakti á sínum tíma mikla reiði í Líbanon og víðar. Niðurstöðu dómstólsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu, en hann er kveðinn upp á þeim tíma er mikil óvissa ríkir í Líbanon í kjölfar sprengingarinnar í Beirút fyrr í mánuðinum og afsagnar ríkisstjórnar landsins sem fylgdi. Fyrr í dag hafði verið greint frá því að engar sannanir séu fyrir því að forsvarsmenn Sýrlands eða Hezbollah-samtakanna hafi látið myrða Hariri, þó þessir aðilar hafi vissulega talið sig hagnast á dauða hans. Dómsuppkvaðning dómstólsins hefur staðið yfir í Hollandi í morgun en dómurinn er heilar 2.600 blaðsíður að lengd. Hariri var myrtur í sprengjuárás í Beirút árið 2005, en auk hans dó 21 til viðbótar og um 220 manns særðust. Miklu magni sprengiefna hafði verið komið fyrir í sendiferðabíl sem sprengdur var í loft upp er bílalest Hariri var ekið þar fram hjá. Rafik Hariri var forsætisráðherra Líbanons á árunum 1992 til 1998 og aftur frá 2000 til 2004.
Líbanon Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Engar sannanir fyrir aðkomu Sýrlands að dauða Hariri Engar sannanir eru fyrir því að forsvarsmenn Sýrlands eða Hezbollah-samtakanna hafi látið myrða Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanon, þó þessir aðilar hafi talið sig hagnast á dauða hans. 18. ágúst 2020 12:03 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira
Engar sannanir fyrir aðkomu Sýrlands að dauða Hariri Engar sannanir eru fyrir því að forsvarsmenn Sýrlands eða Hezbollah-samtakanna hafi látið myrða Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanon, þó þessir aðilar hafi talið sig hagnast á dauða hans. 18. ágúst 2020 12:03