Innlent

Hár styrkur köfnunarefnisdíoxíðs og svifryks í borginni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.
Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. Vísir/Vilhelm

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) og svifryks (PM10) hefur farið hækkandi í borginni í dag samkvæmt mælingum í mælistöðvunum við Grensásveg og Njörvasund. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Klukkan ellefu var styrkur svifryks á Grensásvegi 114 míkrógrömm á rúmmetra og köfnunarefnisdíoxíðs 95 míkrógrömm á rúmmetra. Í mælistöðinni í Njörvasundi var styrkur svifryks 76 míkrógrömm á rúmmetra og köfnunarefnisdíoxíðs 96 míkrógrömm á rúmmetra.

Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi. Uppspretta svifryks er uppspænt malbik, jarðvegsagnir, salt og sót úr útblæstri bifreiða.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra og fyrir svifryk PM10 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Nú er hægur vindur og götur þurrar og er búist við svipuðum veðurfarsaðstæðum í dag og því líkur á svifryks- og köfnunarefnisdíoxíðmengun einkum við umferðargötur. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.

Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru nú staðsettar við gatnamótin Fossaleynir/Víkurvegur og hin við Njörvasund 27.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×