Atvinnulíf

Vinnustaðir geta ekki gefið sér að enginn í hópnum glími við erfiðleika í einkalífi

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Séra Davíð Þór Jónsson prestur í Laugarneskirkju segir að til hans leiti ekki síður fólk sem á erfitt með að fyrirgefa sjálfu sér eftir að hafa brugðist trúnaði maka síns.
Séra Davíð Þór Jónsson prestur í Laugarneskirkju segir að til hans leiti ekki síður fólk sem á erfitt með að fyrirgefa sjálfu sér eftir að hafa brugðist trúnaði maka síns. Vísir/Vilhelm

Séra Davíð Þór Jónsson, prestur í Laugarneskirkju segir fjölmenna vinnustaði ekki geta gefið sér það að  enginn í hópnum glími við erfiðleika.  Makalaus vinnustaðapartí geti þar af leiðandi verið viðburðir sem bjóði hættunni heim. „Til mín leitar ekki síður fólk sem á erfitt með að fyrirgefa sjálfu sér að hafa brugðist trúnaði maka síns heldur en fólk sem á erfitt með að fyrirgefa makanum brotin,“ segir sr. Davíð Þór.  

Þá segir sr. Davíð Þór það geta haft þveröfug áhrif á vinnustaðinn að fara með hópinn á fyllerí.

Í umfjöllun um vinnustaða partí og þá kannski sérstaklega makalaus vinnustaðapartí leituðum við til séra Davíðs Þórs Jónssonar prests í Laugarneskirkju og spurðum hvernig þessi mál blasi við honum í starfi sínu sem prestur. Við spurðum sérstaklega hvort hann vissi til þess að vinnustaða partí væru að orsaka spennu í hjóna- og parasamböndum.

„Það er nokkuð um að fólk leiti til prests vegna vandræða í hjónabandi, þegar samskipti eru farin að einkennast af tortryggni og traustið er farið. Gallinn er að þegar traust er farið er oft mjög lítið til ráða.

Mitt samtal við hjónin snýst þá oftast um fyrirgefninguna og traustið, hvort grunnurinn sé nógu traustur til að eitthvað vit sé í að reyna að halda áfram að byggja ofan á hann.

En þetta snýst ekki bara um að komast í gegn um erfiðleika og jafnvel trúnaðarbrot sem átt hafa sér stað, alloft snýst þetta líka um að horfast í augu við sjálfan sig.

Til mín leitar ekki síður fólk sem á erfitt með að fyrirgefa sjálfu sér að hafa brugðist trúnaði maka síns heldur en fólk sem á erfitt með að fyrirgefa makanum brotin.

Fólk á gjarnan auðveldara með að fyrirgefa þeim sem það elskar heldur en sjálfu sér að hafa brugðist þeim sem það elskar.“

En það er ekki hægt að gefa sér að á stórum vinnustöðum sé enginn í hópnum að glíma við erfiðleika í einkalífi

Sr. Davíð Þór segir að vinnustaðir geti ekki gefið sér að enginn í hópnum glími við erfiðleika í einkalífi. Makalaus partí geti því í sumum tilvikum boðið hættunni heim.Vísir/Getty

Fólk á gjarnan auðveldara með að fyrirgefa þeim sem það elskar heldur en sjálfu sér að hafa brugðist þeim sem það elskar

Traust getur líka snúist um að treysta sjálfum sér

„Partí þar sem annar aðilinn fer án hins til að sletta úr klaufunum geta vissulega valdið spennu og gildir þá einu hvort um er að ræða vinnustaða partí eða önnur. Ef tortryggni er komin í sambandið, þá yfirleitt af því að annar aðilinn hefur gefið hinum ástæðu til að vantreysta sér.

Hins vegar eru vandræðalegar uppákomur í vinnustaðapartíum sérlega erfiðar vegna þess að þar er maður innan um fólk sem maður þarf síðan að umgangast og vinna með.

Það getur haft mjög erfiðar afleiðingar fyrir starfsanda og jafnvel framahorfur þess sem brýtur af sér.“

Finnst þér vera greinamunur á vinnustaðapartíum þar sem makinn er með eða þeim sem eru makalaus?

„Það er eðlismunur á þessu tvennu. Makalaus vinnustaðapartí bjóða hættunni heim, hættu sem reyndar á ekki að þurfa að vera fyrir hendi og er ekki fyrir hendi þar sem engir erfiðleikar eru í hjónabandinu fyrir.

En það er ekki hægt að gefa sér að á stórum vinnustöðum sé enginn í hópnum að glíma við erfiðleika í einkalífi.“

Fyllerí merki um hugmyndafátækt

Félagslega hliðin í vinnunni er ekki hvað síður mikilvæg fyrir flesta og segir sr. Davíð Þór mikilvægt að fólk geti hist utan vinnu til að efla hópinn og liðsheildina.

„Það er mikilvægt fyrir starfsandann að hrista fólk saman utan vinnustaðarins og utan vinnutímans. Það getur líka verið mjög gott að gera það án maka, ekki síst af tillitssemi við hina einhleypu í starfsliðinu.

Hins vegar ber það að mínum dómi vott um einstaka hugmyndafátækt að detta engin önnur aðferð í hug til að gera það en að fara með allan hópinn eitthvert á fyllerí.“

Hvaða ráð myndir þú gefa til fyrirtækja eða fólks um vinnustaða partí?

„Það er góð hugmynd að halda árshátíðir eða samfagnað þar sem makar eru velkomnir. Það er líka góð hugmynd að brydda upp á nýjungum þar sem aðeins starfsfólkið er viðstatt, einhvers konar óvissuferðum eða skemmtilegheitum og jafnvel að veita vín í hófi til að létta aðeins andrúmsloftið.

En að fara með allan hópinn á fyllerí getur haft þveröfug áhrif á móralinn.“

Vinnustaðapartí eru til umfjöllunar í Atvinnulífi á Vísi í dag.


Tengdar fréttir

Vinnustaðapartí: Upplifun makans skiptir máli

"Það er mikilvægt að þegar starfsfólk kemur heim að upplifun maka sé ekki sú að verið sé að taka af sameiginlegum tíma fjölskyldunnar,“ segir Sigurjón Þórðarson ráðgjafi hjá Capacent um vinnustaðapartí. Hann segir margt hafa breyst á síðustu tuttugu árum.

Makalaus vinnustaðapartí geta valdið spennu í parasamböndum

Dæmi eru um að fólk hafi hætt störfum í kjölfar vinnustaðapartía og þá jafnvel í kjölfar þess að hafa brugðist trausti maka síns á slíkum viðburði. Ragnheiður Kr. Björnsdóttir hjónabandsráðgjafi hjá Lausninni segir vinnustaðapartí geta valdið spennu hjá hjónum og pörum.

Vinnustaðapartí: Fyrirtæki velt fyrir sér að hætta að bjóða upp á áfengi

Sú ,"brjálæðislega“ hugmynd hefur jafnvel komið upp hjá sumum fyrirtækjum að draga verulega úr eða láta alveg af því að bjóða upp á áfengi í vinnustaðapartíum segir Guðríður Sigríðardóttir ráðgjafi og einn eigandi Attendus. Þetta er í takt við það sem sjá má í umfjöllun erlendra miðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×