Innbrot í heimahús, verslun og skóla Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. janúar 2020 07:41 Lögreglunni barst einnig tilkynning um eld í rusli við hús en greiðlega gekk að slökkva hann. Vísir/Vilhelm
Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um nokkur innbrot í gærkvöldi- og í nótt, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Seint á níunda tímanum í gær var tilkynnt um innbrot og þjófnað á heimili í Kópavogi. Farið hafði verið inn á heimilið og verðmætum stolið. Svo var tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki eða verslun í Hlíðunum á þriðja tímanum í nótt. Ekkert er frekar skráð um málið í dagbók lögreglu. Tilkynnt var um hið sama í Breiðholti á fjórða tímanum. Þar hafði verið brotist inn í skóla en ekkert frekar skráð. Þá hafði lögregla á öðrum tímanum í nótt afskipti af ölvuðum manni við veitingahús í miðbænum. Maðurinn er grunaður um brot á lögreglusamþykkt, eignaspjöll og fór auk þess ekki að fyrirmælum lögreglu, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð en laus að loknum viðræðum. Þá fóru lögregla og slökkvilið á vettvang eldsvoða að Eyjaslóð úti á Granda í Reykjavík á öðrum tímanum. Þar var tilkynnt um eld í fiskikörum og gámi en ekki eru veittar frekari upplýsingar um málið í dagbók lögreglu. Um svipað leyti var tilkynnt um umferðaróhapp á Laugavegi í póstnúmeri 105. Þar var ekið á vegrið en ekki urðu meiðsl á fólki. Lögregla hafði afskipti af ofurölvi manni við Grensásveg um kvöldmatarleytið. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi verið ósjálfbjarga og ekki getað gert grein fyrir sér. Hann var handtekinn og vistaður sökum ástands í fangageymslu.
Kópavogur Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira