Tók ítrekað á móti ferðamannahópum án réttinda Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. janúar 2020 09:20 Maðurinn var á leið með ferðamannahóp frá Keflavíkurflugvelli þegar hann var stöðvaður. Vísir/vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum tók í vikunni úr umferð erlendan leiðsögumann sem hvorki hafði atvinnuréttindi né dvalarleyfi hér á landi. Maðurinn var sektaður um fjörutíu þúsund krónur, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu á Suðurnesjum. Í tilkynningu segir að maðurinn hafi verið staðinn að farþegaflutningum í atvinnuskyni, sem hann hafði ekki heldur réttindi til. Maðurinn var á leið með farþegana frá Keflavíkurflugvelli þegar hann var stöðvaður. Við skýrslutöku kvaðst hann starfa sem leiðsögumaður fyrir ferðaþjónustufyrirtæki í heimalandi sínu sem sendi viðskiptavini sína m.a. hingað til lands. Hann hefði tekið á móti allmörgum hópum áður en lögregla stöðvaði hann nú. Þá hafi honum verð gerð grein fyrir brotum sínum og hann sektaður um fjörutíu þúsund krónur. Stutt er síðan lögregla á Suðurnesjum stöðvaði tvo erlenda leiðsögumenn vegna gruns um sömu brot. Þeir reyndust að störfum hér á landi sem leiðsögumenn en höfðu ekki atvinnuréttindi hér á landi. Annar maðurinn hafði komið til landsins með hóp 25 ferðamanna og hinn var honum til aðstoðar.
Ferðamennska á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Lögreglumál Tengdar fréttir Án atvinnuréttinda með 25 ferðamenn Lögreglan á Suðurnesjum handtók um síðustu helgi tvo erlenda karlmenn sem voru að störfum sem leiðsögumenn en höfðu ekki atvinnuréttindi hér á landi. 23. janúar 2020 08:34 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira
Án atvinnuréttinda með 25 ferðamenn Lögreglan á Suðurnesjum handtók um síðustu helgi tvo erlenda karlmenn sem voru að störfum sem leiðsögumenn en höfðu ekki atvinnuréttindi hér á landi. 23. janúar 2020 08:34