Handtekinn í annað sinn þá grunaður um að hafa ógnað fólki með hníf Eiður Þór Árnason skrifar 12. janúar 2020 07:21 Nokkuð var um tilvik þar sem ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Vísir/vilhelm
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Í morgun voru alls níu aðilar vistaðir í fangaklefa. Um klukkan eitt eftir miðnætti var maður handtekinn í miðbæ Reykjavíkur grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Að blóðtöku lokinni var honum sleppt en hann var aftur handtekinn nokkru síðar á skemmtistað í miðbænum þar sem hann var sagður hafa ógnað fólki með hníf. Hann var í framhaldi af því vistaður í fangaklefa, er fram kemur í dagbók lögreglu. Rúmlega níu í gærkvöld var ökumaður handtekinn í Breiðholti grunaður um akstur undir áhrifum áfengis eftir að hann hafði ekið á umferðarskilti og sat bifreið hans föst í snjóskafli. Á ellefta tímanum voru þrír aðilar handteknir í Hafnarfirði í tengslum við líkamsárás og gista þeir fangageymslur. Árásin reyndist ekki vera alvarleg. Einnig var maður handtekinn grunaður um húsbrot í austurbæ Reykjavíkur, tveir handteknir grunaðir um hnupl úr verslun og nokkuð um fleiri tilvik þar sem ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Sjá meira