Handbolti

Uppgjör Henrys: Súrt tap gegn Slóvenum

Henry Birgir Gunnarsson í Malmö skrifar
Slóvenar fagna sigrinum í Malmö í kvöld.
Slóvenar fagna sigrinum í Malmö í kvöld. vísir/epa

Eftir að hafa flogið hátt í upphafi EM hafa strákarnir okkar misst flugið og töpuðu sínum öðrum leik í röð í kvöld. Nú gegn Slóveníu, 30-27. Ólympíudraumurinn verður því fjarlægari.

Guðmundur óskaði eftir betri sóknarleik í dag en leikmenn mættu á hælunum. Lentu 7-2 undir og allt í steik. Sóknarleikurinn hægur og menn virtust hreinlega bíða eftir því að Aron Pálmarsson gerði eitthvað. Hann skoraði flott fyrsta mark en síðan fjaraði algjörlega undan honum. Enn og aftur.

Ólafur Guðmundsson og Viggó Kristjánsson komu inn á og hresstu mikið upp á sóknarleik liðsins. Bjöggi varði vel og Viktor Gísli varði hvert vítið á fætur öðru. Strákarnir jafna 9-9 og komast svo yfir, 11-12. Þarna var liðið að spila eins og lið.

Dena Bombac sýndi snilli sína í kvöld.vísir/epa

Bombac óstöðvandi



Síðari hálfleikur var stanslaus eltingarleikur. Vondir dómar og klaufaskapur fór stundum illa með liðið og klókt lið Slóvena hleypti okkar mönnum aldrei almennilega að sér aftur. Strákarnir fengu svo einstaka líflínu en Slóvenar voru of sterkir.

Dean Bombac var óstöðvandi í slóvenska liðinu með níu mörk og tíu stoðsendingar. Strákarnir réðu ekkert við hann í dag. Klemen Ferlin varði svo eins og berserkur. Slóvenía er einfaldlega betra lið en Ísland í dag.

Það var vissulega margt jákvætt við leikinn hjá okkar mönnum. Þeir gefast aldrei upp, fleiri leikmenn koma með framlag, vörnin stóð oft á tíðum vel og markvarslan var flott. Janus Daði var svo virkilega góður. Það var bara ekki nóg gegn svona gæðaliði.

Mátti leyfa Viggó að spila meira

Guðmundur er í uppbyggingarferli og sú ákvörðun hans að taka nokkra reynslubolta aftur inn var gagnrýnd af sumum. Ég er aftur á móti á því að það hafi verið jákvætt því ungu mennirnir geta lært mikið af þessum höfðingjum.

En ef það er verið að byggja upp og yngri menn eru að skila sínu á vellinum þá verður að sýna þeim áfram traustið og spila þeim meira. Alexander Petersson virkaði mjög þreyttur og þungur frá upphafi. Samt spilaði hann 37 mínútur í leiknum.

Viggó leysir hann af með glans, skorar fimm mörk en fær bara 23 mínútur. Þarna verður þjálfarinn að vera trúr uppbyggingunni og láta Viggó spila meira í stað þess að þjösnast á dauðþreyttum reynsluboltanum. Viggó átti það skilið.

Ólafur Guðmundsson kemur svo með frábæra innkomu á báðum endum en er bekkjaður um leið og hann fékk brottvísun. Sjóðheitur. Með hann á vellinum var liðið að komast yfir. Hann átti skilið stærra tækifæri í þessum leik en fékk ekki traustið.

Þetta var snúinn leikur fyrir þjálfarann.vísir/epa

Aron ætlar ekki að verða leiðtogi



Frammistaða Aron Pálmarssonar heldur svo áfram að valda vonbrigðum. Það þarf ekkert að fjölyrða um gæði þess leikmanns og það er lúxus að eiga slíkan heimsklassaleikmann. Hann er líka maðurinn sem á að bera þetta lið lengra. Vera leiðtoginn og leiða þetta skemmtilega lið áfram. Því miður er hann ekki að ná því að verða sá stöðugi leiðtogi í liðinu sem við vonuðumst eftir.

Með eðlilegum leik frá honum í toppstandi hefði Ísland unnið Ungverjaland að mínu mati og átt meiri séns í dag. Liðið fer að mörgu leyti eins langt og hann ber það eins og við sáum er hann slátraði Dönum. Því miður nær hann sínu besta of sjaldan fram í landsliðsbúningnum.

Það eru svo sannarlega hæðir og lægðir á þessum blessuðu stórmótum og hlutirnir fljótir að breytast. Þessu móti er þó alls ekki lokið og strákarnir eiga enn möguleika að ná sínum markmiðum. Þá verður líka leikurinn á sunnudag gegn Portúgal að vinnast. Það er algjör úrslitaleikur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×