Guðlaug Edda Hannesdóttir tók þátt í heimsbikarsmótinu í þríþraut í gær en að þessu sinni var keppt í Mooloolaba í Ástralíu. Guðlaug Edda endaði í 24. sæti.
Fyrst var keppt í sundi þar sem Guðlaug náði góðum árangri og var rétt rúmum 30 sekúndum á eftir þeirri sem kom fyrst í mark.
Eftir það var hjólað og var Guðlaug í stórum hópi kvenna sem kom í mark. Alls kláruðu 28 keppendur að hjóla. Í kjölfarið var hlaipið en Guðlaug náði að klára keppnina þrátt fyrir að glíma við meiðsli á lokakaflanum.
Endaði hún eins og áður sagði í 24. sæti en fyrir keppni gærdagsins var hún í 35. sæti, af 56, á heimslistanum. Hún nældi sér þar af leiðandi í mikilvæg heimslista- sem og Ólympíustig í Ástralíu.