Sport

Dag­skráin í dag: Ítalski boltinn, PGA, um­spilið og stór­leikur í Ár­bænum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það er stórleikur á Fylkisvelli í dag.
Það er stórleikur á Fylkisvelli í dag. Foto: Bára Dröfn Kristinsdóttir/Bára Dröfn Kristinsdóttir

Fimm beinar útsendingar eru á dagskránni á Stöð 2 Sport í dag en boðið er upp á fjórar útsendingar af fótbolta og eina úr golfinu.

Það er tvíhöfði í ítalska boltanum á Stöð 2 Sport 3 í dag. Sampdoria og AC Milan mætast klukkan 17.30 og klukkan 19.40 verður flautað til leiks í Cagliari er Juventus getur tryggt sér titilinn.

Það er svo stórleikur í Pepsi Max-deild kvenna klukkan 19.15 er Fylkir og Breiðablik mætast í Árbænum en rimur þessara liða hafa verið ansi áhugaverðar síðustu ár.

Swansea er 1-0 yfir gegn Brentford eftir fyrri leikinn í undanúrslitunum um sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðin mætast klukkan 18.45 á Griffin Park í kvöld.

PGA Special: FedEx Cares Charity mótið fer fram í dag en útsending frá því hefst klukkan 18.00.

Alla útsendingar dagsins má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×