Þrír greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær og tveir við landamærin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Smit greindist á íþróttamótinu ReyCUP í gær og hefur sá sem greindist með veiruna verið sendur í einangrun og sextán aðrir, sem voru í nánu samneyti við hann, hafa verið sendir í fjórtán daga sóttkví.
Einstaklingurinn tók þátt í félagsstarfi íþróttafélags í Reykjavík og er einungis hluti liðsins sem tók þátt á mótinu í sóttkví. Aðrir tengjast einstaklingnum öðrum böndum. Enn hefur uppruni smitsins ekki verið fundinn og smitrakning er enn í gangi.
Íþróttafélagið og mótshaldari hafa farið eftir þeim leiðbeiningum og reglum sóttvarnalæknis og almannavarna sem eru í gildi og hafa viðeigandi ráðstafanir verið gerðar.
Annað smit sem greindist í gær tengist smiti sem greint var frá á föstudag. Að sögn almannavarna hefur Íslensk erfðagreining raðgreint smitin og kom í ljós að um nýja tegund veirunnar er að ræða en hún hefur ekki greinst hér á landi áður. Smitrakningu í því máli er lokið en tólf eru í sóttkví eftir að hafa verið í nánu samneyti við þann einstakling.
Þriðja smitið sem greindist í gær er hjá einstaklingi sem kom til landsins að utan þann 15. júlí síðastliðinn. Sá greindist með veiruna á suðvesturhorni landsins. Hann er kominn í einangrun og sex sem voru í samneyti við hann eru komnir í sóttkví. Þeir munu jafnframt fara í sýnatöku en tveir eru þegar farnir að sýna einkenni veirunnar.
Þá greindust tvö smit við landamærin en beðið er eftir niðurstöðum frekari rannsókna á því hvort um virk smit eða gömul sé að ræða.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis brýna fyrir fólki að gæta varúðar og huga vel að einstaklingsbundnum smitvörnum. Leiki minnsti vafi á hvort einkenni Covid-19 veirunnar séu til staðar er sá hinn sami beðinn um að fara í sýnatöku á næstu heilsugæslustöð.
Fréttin var uppfærð klukkan 11:06.