Lífið

Stjörnulífið: Nýtt húðflúr og Aron Can kominn með nýja hárgreiðslu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Viðburðarríkir dagar að baki hjá samfélagsmiðlastjörnunum. 
Viðburðarríkir dagar að baki hjá samfélagsmiðlastjörnunum. 

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Klemens Hannigan, liðsmaður Hatara, er á ferðalagi um landið með fjölskyldunni.

Handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson og Elísabet Gunnarsdóttir fögnuðu sumrinu. 

 Crossfit-stjarnan Sara Sigmundsdóttir klæddi sig upp og naut kvöldsins með vinum. 

 Eva Laufey Kjaran skellti sér í Geosea laugina á Húsavík.

Tískubloggarinn Pattra Sriyanonge og sonur hennar njóta lífsins saman í fríi á Tyrklandi. Pattra á drenginn með Theódóri Elmari Bjarnasyni sem er atvinnumaður í knattspyrnu.

Alexandra Helga Ívarsdóttir birti mynd frá 2019 þegar hún skellti sér í Bláa Lónið með eiginmanni sínum Gylfa Sigurðssyni sem leikur knattspyrnu með Everton í ensku úrvalsdeildinni.

View this post on Instagram

2o19 camera roll

A post shared by Lexa (@alexandrahelga) on

Birgitta Líf Björnsdóttir skellti sér út á lífið og var glæsilega að vanda. 

 Góður sumardagur hjá dansdrottningunni Ástrósu Tryggvadóttur. 

 Tónlistarkonan Þórunn Antonía tilkynnti um nýtt lag frá henni en það ber nafnið Flugdreki.

Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson og kærasta hans Kelsey Henson notuðu tæknina til að skipta um andlit. Þau skelltu einnig sér í Bláa Lónið og höfðu lónið út af fyrir sig. 

Samfélagsmiðlastjarnan og skemmtikrafturinn Eva Ruza rifjaði upp hvernig hún kynntist Hjálmari Erni en í dag starfa þau mikið saman í veislustjórnun. 

Kristbjörg Jónasdóttir óskaði eiginmanninum til hamingju með feðradaginn sem er 21.júní í Katar. Hún býr með landsliðsfyrirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni í Katar. Kristbjörg er komin 26 vikur á leið með sitt þriðja barn. 

 

Leikkonan Kristín Pétursdóttir fékk sér nýtt húðflúr á dögunum. Kristín skellti húðflúri af snáki á bakið.

Bryndís Líf fagnaði 24 ára afmæli sínu með stæl. 

Annar Hataramaður, Matthías Tryggvi Haraldsson, er einnig að ferðast um landið og birti þessa mynd af sér og kærustinni Kristlínu Dís Ingilínardóttur.

 Aron Can í hörkuformi og kominn með nýja hárgreiðslu. 

 Nökkvi Fjalar er stoltur af því uppeldi sem hann fékk. „Eitt það allra mikilvægasta sem ég lærði í uppeldi mínu er að fordæma engan!  Það eru í raun forréttindi að fá svona uppeldi því það er svo langt í frá sjálfgefið. Það eru bara alls ekki allir sem læra það að fordæma engan í uppeldinu sínu.“

Stjörnulögfræðingurinn Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson og Jón Kaldal flottir saman í miðbænum. Þeir eru frændur.

 Skemmtilegur tennissunnudagur hjá Ásdísi Rán.

 Jón Jónsson kom afa sínum á Instagram. 

Sunneva Einars fór út og klæddi sig upp.

Bjarki Már Elísson, Kári Kristján Kristjánsson og Aron Pálmarsson skelltu sér í golf í Vestmannaeyjum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×