Dúxaði með 9,7 í einkunn og stefnir á tölvunarfræði í haust Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 6. júní 2020 11:01 Reyn var annar tveggja dúxa frá Tækniskólanum og útskrifaðist með 9,7 í einkunn. Aðsend
Reyn Alpha Magnúsar er annar tveggja dúxa sem útskrifaðist úr Tækniskólanum í Eldborgarsal Hörpu föstudaginn 29. maí. Reyn útskrifaðist af tölvubraut með 9,7 í einkunn og dúxaði hán ásamt Njáli Halldórssyni sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut flugtækni. Reyn stefnir á að fara í tölvunarfræði í Háskóla Íslands í haust og segir hán að það hafi ekki margt annað komið til greina. „Ég ákvað að fara á tölvubraut mjög stuttu áður en ég þurfti að sækja um í framhaldsskóla en reynslan hefur síðan bara sýnt það að það var góð ákvörðun og ég ætla að halda því áfram.“ Reyn segist alltaf hafa verið mikið fyrir tölvur og tæki: „bara alveg frá því ég fæddist eiginlega.“ Meginspurningin hafi verið sú hvaða skóla hán ætti að sækja að loknu framhaldsskólanáminu. Háskóli Íslands hafi þá orðið fyrir valinu. Reyn Alpha stendur fyrir utan Tækniskólann á Skólavörðuholti.Aðsend „Ég bjóst ekki við þessu og ég held það hafi enginn búist við þessu. Þetta gekk samt bara vonum framar og það gekk vel að flytja okkur yfir í fjarnám og kennararnir tóku rosalega vel utan um þetta allt,“ segir hán. „Mér fannst þetta samt mjög svipað, ég hélt bara mínu striki og kennarar voru með skipulagða tíma á sömu tímum samkvæmt stundatöflu. Sérstaklega þessar tölvugreinar voru eiginlega nákvæmlega eins.“ Hán segist ekki hafa búist við því til að byrja með að hán fengi ekki að mæta aftur í skólann. „Ekki fyrst. Það var fyrst talað um fjórar vikur og þá hugsaði ég að maður myndi líklega koma aftur svo þegar leið á það fór mig að gruna að það yrði ekkert aftur.“ Útskriftin sjálf fór fram í Eldborgarsal Hörpu og var útskriftarefnum skipt upp í tvo hópa. Alls brautskráðust 388 nemendur af 81 fagbraut. Hvert útskriftarefni fékk jafnframt að bjóða tveimur aðstandendum að vera viðstaddir athöfnina. „Það var rosalega mikil óvissa um hana þangað til í lokin og við vissum í rauninni ekkert hvernig hún yrði fyrr en nokkrum vikum fyrr.“ Reyn stefnir á að fara í tölvunarfræði í Háskóla Íslands í haust.Aðsend „Það var held ég bara betra en nokkur þorði að vona. Þetta voru mjög flottar athafnir og maður hefði ekki giskað á það tveimur vikum fyrr að það hefði verið hægt að halda svona athöfn,“ segir Reyn. Reyn segir að leiðinlegt hafi verið að fá ekki að kveðja skólann almennilega. „Mér finnst eiginlega leiðinlegast að fá ekki að hitta kennarana sem eru búnir að vera með mér í þrjú ár og standa sig mjög vel. Auðvitað var það svolítið sérstakt en þetta var samt betra en ég þorði að vona. Við fengum þó allavega athöfn með skólastjóranum og fengum að vera með vinum þar.“ Hán segir að ekki hafi staðið til að fara í útskriftarferð líkt og almennt tíðkast en Reyn ætlaði þó að fara á Eurovision í Rotterdam í Maí til að fagna skólalokunum. Það, eins og þekkt er, gekk ekki eftir. „Ég stefni á að fara á næsta ári.“ Reyn segist mikill Eurovision aðdáandi allt frá barnæsku. „Það hefur orðið meira á síðari árum en ég hef alltaf horft á keppnina.“
Skóla- og menntamál Reykjavík Dúxar Tengdar fréttir Hélt hún fengi smá frí og fengi svo að klára skólann almennilega Arney Íris E. Birgisdóttir dúxaði í MH og stefnir á að fara í nám í Alþjóðasamskiptum í samblandi við lögfræði. Hún ætlar þó að taka sér árspásu, vinna og ferðast ef kórónan leyfir. 5. júní 2020 09:00 Dúxaði í Verzló og stefnir á rafmagnsverkfræði í King's College „Þetta var mjög frábrugðið öllu sem við þekktum og það var svolítið sjokk að fara beint úr dagskóla í 100 prósent fjarnám,“ segir Snædís Edwald Einarsdóttir, sem útskrifaðist af eðlisfræðibraut úr Verzlunarskóla Íslands og lauk hún náminu með 9,73 í einkunn og varð jafnframt dúx. 3. júní 2020 10:00 Dúxaði MR með 9,84: „Ég held það sé alltaf einhver söknuður“ „Þetta var mjög frábrugðin önn, þetta kom mjög á óvart. Ég man svo vel eftir því þegar við vorum í skólanum og við vorum að horfa á blaðamannafundinn inni í stofu þegar þetta var tilkynnt um samkomubannið. Ég hélt að við myndum bara koma aftur í skólann, ég var alveg viss um það,“ segir Katla Rut Robertsdóttir Kluvers, dúx í MR. 1. júní 2020 12:33 Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Fleiri fréttir Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sjá meira
Hélt hún fengi smá frí og fengi svo að klára skólann almennilega Arney Íris E. Birgisdóttir dúxaði í MH og stefnir á að fara í nám í Alþjóðasamskiptum í samblandi við lögfræði. Hún ætlar þó að taka sér árspásu, vinna og ferðast ef kórónan leyfir. 5. júní 2020 09:00
Dúxaði í Verzló og stefnir á rafmagnsverkfræði í King's College „Þetta var mjög frábrugðið öllu sem við þekktum og það var svolítið sjokk að fara beint úr dagskóla í 100 prósent fjarnám,“ segir Snædís Edwald Einarsdóttir, sem útskrifaðist af eðlisfræðibraut úr Verzlunarskóla Íslands og lauk hún náminu með 9,73 í einkunn og varð jafnframt dúx. 3. júní 2020 10:00
Dúxaði MR með 9,84: „Ég held það sé alltaf einhver söknuður“ „Þetta var mjög frábrugðin önn, þetta kom mjög á óvart. Ég man svo vel eftir því þegar við vorum í skólanum og við vorum að horfa á blaðamannafundinn inni í stofu þegar þetta var tilkynnt um samkomubannið. Ég hélt að við myndum bara koma aftur í skólann, ég var alveg viss um það,“ segir Katla Rut Robertsdóttir Kluvers, dúx í MR. 1. júní 2020 12:33