Lífið samstarf

Ali bingó í samkomubanni: Glæsilegir vinningar

Ali
Hjálmar Örn stjórnar bingói í beinni í kvöld á facebooksíðu Ali. Geggjaðir vinningar. Bingóið hefst klukkan 19.30.
Hjálmar Örn stjórnar bingói í beinni í kvöld á facebooksíðu Ali. Geggjaðir vinningar. Bingóið hefst klukkan 19.30.

„Okkur finnst fólki vera farið að leiðast aðeins, búið að horfa á allt á sjónvarpinu í sóttkvínni og ganga sama hringinn um nágrennið, við vildum brjóta þetta upp með smá skemmtilegheitum,“ segir Einar Páll Gunnarsson, markaðsstjóri Ali en í kvöld býður Ali öllum landsmönnum í bingó heima í stofu.

Samstarf Ali bingó á facebook

Bingóið verður ekki með hefðbundnu sniði þar sem samkomubann ríkir heldur í beinni útsendingu á Facebook síðu Ali. Þátttakendur verða heima í stofu að fylgjast með útsendingunni og spila bingó með fjölskyldunni.

„Það má hafa gaman þrátt fyrir samkomubann og við ætlum að gera það saman og þetta er eitthvað sem hægt er að gera saman heima í sófa. Bingóið hefst klukkan 19.30 í kvöld og Hjálmar Örn skemmtikraftur mun halda uppi fjörinu sem bingóstjóri. Hann er mjög hress og það verður mikið fjör,“ segir Einar.

Glæsilegir vinningar eru á boðstólnum, Apple iPad frá Vodafone, Weber-grill, Plantronics heyrnatól frá Origo, skemmtipakkar frá Stöð 2 og gjafabréf á veitingastaði ásamt fullt af öðrum flottum vinningum. Þátttaka í bingóinu er ókeypis og hægt er að sækja bingospjöld á bingo.ali.is

Hvernig tek ég þátt?

1. Sækir bíóspjöld á bingo.ali.is. Þarft að skrá nafn, símanúmer og netfang. Hámark 6 spjöld á hvert símanúmer.

2. Mælt er með því að prenta bingóspjöldin út en það er einnig mögulegt að hafa þau opin í símanum eða tölvunni.

3. Fylgist með beinni útsendingu á Facebook síðu Ali klukkan 19.30 í kvöld, þriðjudaginn 7. apríl.

4. Þegar þú færð BINGÓ þá kommentar þú á útsendinguna "BINGO! og bætir við auðkenni spjalds. (Auðkennið kemur fram á bingóspjaldinu.)

5. Bingóstjóri hringir í vinningshafa í það símanúmer sem var skráð fyrir spjaldinu.

Hér má sækja bingóspjöldin og fylgjast svo vel með beinni útsendingu hér klukkan 19.30 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×