Barðir, stungnir og hengdir upp í loft Bjarki Ármannsson skrifar 27. maí 2015 11:37
Margvísleg sönnunargögn um pyntingar, skyndiaftökur og aðra stríðsglæpi koma fram í nýrri og ítarlegri samantekt Amnesty International um ástandið í Austur-Úkraínu. Af þeim 33 fyrrverandi föngum sem Amnesty tók viðtal við lýstu 32 grófum barsmíðum og öðrum alvarlegum misþyrmingum, sem bæði aðskilnaðarsinnar og hópar vilhallir úkraínskum stjórnvöldum beittu. „Rannsóknir okkar mitt í ólgandi stríðsátökum í Austur-Úkraínu sýna að pyndingar á föngum eru jafn algengar og þær eru átakanlegar,“ segir John Dalhuisen, framkvæmdastjóri Evrópu- og Mið-Asíudeildar Amnesty International. Fangarnir fyrrverandi lýstu því meðal annars við gerð samantektarinnar hvernig þeir voru barðir allt þar til beinbrot hlutust af, stungnir, bundnir og hengdir upp í loft. Einnig hafi þeim verið gefið rafstuð, þeir sviptir svefni og svo dögum skiptir, þeim hótað lífláti og neitað um læknisaðstoð. Í tilkynningu frá Amnesty segir að samtökin hafi reynt að ná tali af úkraínskum stjórnvöldum vegna þessa en engin viðbrögð fengið enn. Amnesty hefur jafnframt sent áskorun til Sameinuðu þjóðanna þess efnis að sendisveit skoði án tafar allar varðhaldsstöðvar þar sem föngum er haldið í tengslum við átökin. „Aðskilnaðarsinnar og öfl hliðholl stjórnvöldum í Úkraínu verða að binda enda á þessa glæpi og tryggja að allir sem berjast undir þeirra merkjum séu meðvitaðir um að beiting pyndinga og illrar meðferðar á föngum á stríðstímum hefur afleiðingar samkvæmt alþjóðalögum,“ segir Dalhuisen.
Mest lesið Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Fleiri fréttir Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Sjá meira