Bretar leita enn eftir leikmönnum í handboltalandsliðið 20. september 2011 12:30 Breska kvennalandsliðið í handbolta leitar enn eftir leikmönnum fyrir ÓL í London 2012. Heimasíða breska handboltasambandsins.
Bretar hafa unnið hörðum höndum að því að undirbúa sig sem allra best fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í London á næsta ári. Sem gestgjafar ÓL verða Bretar með lið í keppnisgreinum á borð við handbolta karla og kvenna – og breska handknattleikssambandið er enn að leita að leikmönnum sem gætu styrkt landsliðin fyrir ÓL. Á heimasíðu breska handknattleikssambandsins er enn boðið upp á þann möguleika að leikmenn sæki hreinlega um að komast í liðið og skiptir fyrri reynsla af handbolta engu máli. Og þar að auki þurfa umsækjendur ekki að vera með breskt vegabréf samkvæmt frétt Daily Mail. Í sumum tilfellum dugar það að eiga ættir að rekja til Bretlands og þeir sem hafa búið í lengri tíma á Bretlandseyjum koma einnig til greina. Bretar hafa allt frá árinu 2006 unnið markvisst að því að finna hæfileikaríka leikmenn í bresku handboltalandsliðin. Kvennaliði hefur sýnt miklar framfarir og má nefna að árið 2006 tapaði Bretland með 40 marka mun fyrir landsliði Færeyja. Í mars árið 2008 snérist dæmið við og Bretar unnu frændþjóð Íslands með þriggja marka mun. Um 700 konur óskuðu eftir því að komast í breska landsliðið árið 2006 og af þeim 180 sem voru prófaðar höfðu aðeins 10 þeirra leikið handbolta áður. Alls voru 20 leikmenn valdir í úrtakshópinn og komu margar þeirra úr öðrum íþróttum, s.s. ruðningi, körfubolta, netbolta, fótbolta, brennibolta. Stór hluti hópsins, alls 12 leikmenn, hefur dvalið í Århus Danmörku undanfarin misseri við æfingar og spilað sem lið í deildakeppni. Vigdis Holmeset, annar af þjálfurum breska kvennalandsliðsins, segir í viðtali við norska Dagblaðið að breska liðið gæti án efa spjarað sig vel í efstu deild í Noregi.
Handbolti Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira