Norðmenn vilja semja við Þóri fram yfir ÓL 2016 20. september 2011 09:30 Þórir Hergeirsson ásamt Marit Breivik fyrrum aðalþjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta. AFP
Karl-Arne Johannessen forseti norska handknattleikssambandsins segir í viðtali við dagblaðið Verdens Gang að Þórir Hergeirsson verði endurráðinn sem þjálfari norska kvennalandsliðsins. Ef marka má orð forsetans þá verður Selfyssingurinn með norska liðið á Ólympíuleikunum í Brasilíu árið 2016. Þórir hefur enn ekki fengið formlegt tilboð um að halda áfram þjálfun liðsins en Johannessen telur engar líkur á því að Þórir verði ekki áfram með liðið. „Hann verður áfram, hvort sem hann vill það eða ekki. Hann getur farið að bóka flugmiðann til Brasilíu árið 2016. Ég er mjög ánægður með störf Þóris, hvernig hann hugsar og hvernig hann kemur fram fyrir hönd liðsins,“ segir Johannessen og bætir því við að allir stjórnarmenn sambandsins séu sammála um að Þórir og aðstoðarþjálfari liðsins Mia Høgdahl eigi að halda áfram með liðið. Þórir tók við norska kvennalandsliðinu árið 2009 en hann hafði verið aðstoðarþjálfari Marit Breivik í mörg ár þar á undan. Núgildandi samningur hans rennur út eftir Ólympíuleikana í London á næsta ári. „Ég vil helst ganga frá þessum málum í haust. Það er mikilvægt að geta skipulagt hlutina langt fram í tímann með fjölskyldunni,“ segir Þórir í viðtali við VG.
Handbolti Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira