Björgvin minnist Robin Gibb - frábærir lagahöfundar 21. maí 2012 10:46 „
Hljómsveitin Bee Gees hafði mikil áhrif á tónlistina um heim allan, mér fannst þeir æðislega góðir," segir stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson um andlát Robin Gibb, sem lést í gær, 62 ára að aldri. Björgvin segir að andlát Robin hafi ekki komið sér á óvart, hann var orðinn mjög veikur, enda háð harðvítuga baráttu við krabbamein í lifrinni síðustu mánuði. „Ég fylgdist vel með þessu á netinu og undir lokin gat hann ekki gert neitt annað en blikkað augunum," útskýrir Björgvin sem var næstum búinn að fá poppgoðið til þess að stíga á svið hér á landi síðustu jól. Robin afboðaði tónleikana með skömmum fyrirvara auk tíu annarra víða um Evrópu vegna veikindanna. Það munaði hinsvegar litlu að Robin hefði tekið lagið með Björgvini á árlegum jólatónleikum. „Það var allt klappað og klárt. Við vorum búnir að ganga frá samningum og fá lagalistann í hendur, svo varð hann veikur og þurfti að aflýsa," segir Björgvin, sem missti af tækifærinu að syngja með Robin. Spurður hvort hann finni fyrir eftirsjá, svarar Björgvin einfaldlega: „Maðurinn með ljáinn gerir ekki alltaf boð á undan sér." Maurice, bróðir Robin, lést einnig úr veikindum árið 2003, Barry Gibb, þriðji og elsti bróðirinn, er því eini eftirlifandi meðlimur hljómsveitarinnar frægu, sem Björgvin sá þó aldrei á sviði. Björgvin segir að eftir standi frábær lög einstakra tónlistarmanna. „Þeir hafa samið tónlist fyrir alla, og æðisleg lög líka. Líklega áttar fólk sig ekki alveg á því hversu mikið af frægum lögum þeir sömdu, enda sögðust þeir alltaf vera lagahöfundar," segir Björgvin en nefna má lögin Stayin' Alive, How Deep Is Your Love, Massachusetts og Night Fever. Björgvin segir hljómsveitina Bee Gees vera eina af fimm stærstu hljómsveitum sögunnar. Hér fyrir ofan má sjá myndband með einu frægasta lagi Bee Gees.
Tengdar fréttir Robin Gibb látinn Robin Gibb, söngvari Bee Gees, lést í dag. Hann var 62 ára gamall. Gibb hafði háð langa baráttu við krabbamein.Tónlistarferill Gibbs hófst þegar hann stofnaði Bee Gees með bræðrum sínum, Barry og Maurice árið 1958. 20. maí 2012 23:56 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Fleiri fréttir „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Sjá meira
Robin Gibb látinn Robin Gibb, söngvari Bee Gees, lést í dag. Hann var 62 ára gamall. Gibb hafði háð langa baráttu við krabbamein.Tónlistarferill Gibbs hófst þegar hann stofnaði Bee Gees með bræðrum sínum, Barry og Maurice árið 1958. 20. maí 2012 23:56