Innlent

Bíll valt á Reykjanesbraut í morgun

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Ökumaðurinn slapp ómeiddur. Mynd úr safni.
Ökumaðurinn slapp ómeiddur. Mynd úr safni. vísir/vilhelm
Bíll valt vestan við Kúagerði á Reykjanesbraut í morgun. Samkvæmt lögreglunni var ökumaðurinn einn á ferð og slapp hann án meiðsla. 

Ökumaðurinn mun hafa misst stjórn á bifreið sinni í hálku með þeim afleiðingum að hún rann út af veginum. Þar lenti bíllinn á steini og valt. 

Samkvæmt lögreglunni var óskað eftir dráttarbifreið til að fjarlægja bílinn, sem var á toppnum þegar að var komið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×