Skoðun

Í tilefni niðurstöðu launakönnunar VR 2011

Maríanna Traustadóttir skrifar
Eitt af hlutverkum verkalýðshreyfingarinnar er að fylgja eftir markmiðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Það felur m.a. í sér að komið verði á og viðhaldið jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla á öllum sviðum samfélagsins. Til þess að ná fram ofangreindum markmiðum er nauðsynlegt að efla og styrkja samstarf við alla aðila vinnumarkaðarins og önnur hagsmuna- og félagasamtök sem vinna að jafnrétti kvenna og karla.

VR er fjölmennasta aðildarfélag ASÍ og hefur félagið birt niðurstöðu launakönnunar sinnar undanfarin ár. Niðurstöðurnar hafa ekki aðeins nýst félagsmönnum VR heldur og launafólki almennt. Allar tölulegar upplýsingar þar sem fram kemur þróun og breytingar á launum á almenna vinnumarkaðinum eru mikilvæg viðbót við aðrar launakannanir. Niðurstöður launakönnunar VR staðfesta launamun kynjanna sem fram hefur komið í öðrum könnunum.

Niðurstöður launakönnunar VR fyrir árið 2011 sýna að almenn hækkun heildarlauna frá síðasta ári er 4,5% en það er um tvö prósentustig umfram kjarasamninga frá janúar 2010 til janúar 2011, og er það ánægjulegt. Önnur niðurstaða könnunarinnar er ekki eins ánægjuleg en það er að launamunur kynjanna er óbreyttur á milli ára. Konur í VR eru með 15,3% lægri heildarlaun en karlar en kynbundinn launamunur er 10,6%. Það eru mikil vonbrigði. Launamunur kynjanna hefur ekki tekið marktækum breytingum til hins betra á undanförnum árum.

Í nafni kvenfrelsis og jafnréttis voru konur hvattar til virkrar þátttöku á vinnumarkaði og sannarlega hlýddu þær því kalli, þar sem atvinnuþátttaka íslenskra kvenna er i dag um 80%. Íslenskt atvinnulíf er háð vinnuframlagi kvenna. Konur starfa í öllum starfsgreinum, þær bera m.a. uppi fjölda þjónustugreina, menntakerfið og heilbrigðiskerfið. Íslenskt samfélag er einfaldlega óstarfhæft án vinnuframlags kvenna. Konur hafa sótt sig í veðrið og eflt menntun sína á öllum sviðum. Þær eru meirihluti þeirra sem úrskrifast úr framhaldsskólum og háskólum. Fram kemur í launakönnun VR að menntun hefur áhrif á launamun kynjanna á þann hátt að munurinn minnkar eftir því sem menntunin eykst. En því miður þá hefur launamunur kynjanna, í þessum hópi, aukist á milli áranna 2010 og 2011. Árið 2010 var hann 5,3% en er nú 9,9% hjá félagsmönnum VR með meistara- eða doktorsgráðu.

Hvað er til ráða? Kynbundinn launamunur er svartur blettur á íslensku samfélagi, jafnir möguleikar kvenna og karla til starfa, starfsþróunar og launa er hagsmunamál launafólks og fyrirtækja. Verkalýðshreyfingin vill axla ábyrgð og hefur í samvinnu við SA og velferðarráðuneytið unnið að gerð staðals um framkvæmd stefnu launajafnréttis innan fyrirtækja og stofnana sem leiðbeinir atvinnurekendum hvernig markmiðum jafnlaunaákvæðis jafnréttislaga verður náð.

Upplýsingar og fræðsla um kynbundinn launamun til stjórnenda fyrirtækja og launafólks almennt eru nauðsynlegt og mikilvægt skref til að eyða þessari óværu. Í kjarasamningi ASÍ og SA frá 5. maí sl. var samþykkt bókun um jafnréttisáherslur. Bókunin er í fjórum liðum og m.a. samþykktu aðilar að gera sameiginlegt kynningar- og fræðsluefni fyrir launafólk og fyrirtæki um jafnrétti á vinnumarkaði. ASÍ hefur þegar hafið undirbúning að því verkefni í samstarfi við jafnréttis- og fjölskyldunefnd sambandsins.

Jafnréttisbókunina er að finna í heild sinni á www.asi.is




Skoðun

Sjá meira


×