Svipmynd Markaðarins: Keppti í blaki í efstu deild í 15 ár Haraldur Guðmundsson skrifar 4. apríl 2014 20:52 Friðbert var ráðinn framkvæmdastjóri SFF árið 2000. Vísir/GVA
Friðbert Traustason, formaður og framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF), hefur verið formaður samtakanna frá 1995. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fimm árum síðar og var því öllum hnútum kunnugur í kjaraviðræðum SSF og SA sem enduðu með undirritun samninga um miðjan síðasta mánuð. „Kjarasamningarnir voru ansi erfiðir enda fyrirfram ákveðnir fyrir alla landsmenn af þremur aðilum, ASÍ, SA og ríkisstjórninni, og það er alltaf erfitt að þurfa að kyngja því. Menn þurftu að velja um annaðhvort að éta það hrátt eða fá ekki neitt,“ segir Friðbert. Hann fæddist vestur á Flateyri við Önundarfjörð í október 1954 og byrjaði snemma að vinna. „Í fyrsta starfinu sem ég fékk eitthvað borgað fyrir þurfti ég að hreinsa garnir í sláturhúsinu á Flateyri. Þá var ég átta ára. Það var mjög sérstakt að standa og hreinsa garnirnar ofan í bala sem voru síðan sendar suður til Reykjavíkur til að framleiða úr þeim pylsur. Síðan var ég á sjó frá fermingu og eftirminnilegasti túrinn var þegar ég fór á síld í Norðursjónum sextán ára gamall.“ Friðbert var í fyrsta útskriftarárgangi Menntaskólans á Ísafirði árið 1974. Þaðan lá leiðin í Háskóla Íslands þar sem hann lærði verkfræði í tæp tvö ár. „Síðan söðlaði ég um og fór að vinna hjá Reykjavíkurborg og síðar Reiknistofu bankanna þar sem ég vann við kerfisfræði og forritun í tuttugu ár. Á þeim árum fór ég aftur í skóla og sótti mér háskólagráðu í hagfræði frá HÍ. Svo fór ég seinna í meistaranám í stjórnun og stefnumótun í sama skóla og kláraði þar allt nema ritgerðina, eins og svo margir. Hún er núna sett á júní en hvað verður veit maður aldrei,“ segir Friðbert og hlær. Hann keppti í blaki í efstu deild í fimmtán ár, lengst af með Íþróttafélagi stúdenta, og er að eigin sögn alæta á íþróttir. „Svo var ég viðloðandi öldungablakið í seinni tíð þangað til bakið gaf sig. Ég er einnig mikill golfari og svo keypti ég mér hjól í fyrrasumar og er nokkuð duglegur að hjóla í og úr vinnu. Hinum íþróttunum sinnir maður orðið mest með því að horfa á sjónvarpið.“ Friðbert er giftur Sigrúnu Ósk Skúladóttur lyfjatækni. Þau eiga tvö börn, lögmanninn Sunnu Ósk og háskólanemann Trausta. „Afahlutverkið er mikilvægasta verkefnið þessa dagana. Ég á eina dótturdóttur sem heitir Ragnheiður Ósk og er fjögurra ára. Hún er búin að tilkynna afa sínum að nú vilji hún læra að lesa og að afi þurfi að kenna henni að lesa.“Anna Karen HauksdóttirAnna Karen Hauksdóttir, formaður Starfsmannafélags Íslandsbanka „Við Friðbert höfum þekkst lengi og unnið saman frá 2004 í stjórn SSF. Friðbert kemur ávallt fram af heilindum og stendur við orð sín. Hann hefur sterka réttlætiskennd og á auðvelt með að sjá báðar hliðar á málum þó hann geti verið harður í samningum. Vestfirska þrjóskan hefur nýst honum vel en jafnframt hefur hann sínar mjúku hliðar og má ekkert aumt sjá. Hann er víðsýnn en á sama tíma skemmtilega íhaldssamur. Í gegnum tíðina hefur hann reynst mér góður lærifaðir. Hann er manna fróðastur um lífeyris- og kjaramál og alltaf tilbúinn að deila upplýsingum og fræða aðra í kringum sig.”Sveinn SveinssonSveinn Sveinsson, hæstaréttarlögmaður „Við Friðbert höfum starfað saman að málefnum starfsmanna fjármálafyrirtækja yfir 30 ár. Hann er ótrúlega úrræðagóður þegar leysa þarf flókin mál enda er áhugi hans og þekking á þessu sviði mikil. Þó hann sé lærður hagfræðingur en ekki lögfræðingur hefur hann mikla innsýn í lögfræðina og hefur mörg erfið mál leyst á grunni þeirrar þekkingar. Þá tel ég að fáir hafi meiri þekkingu á lífeyrismálum og er endalaust hægt að fletta upp í honum þegar þau mál eru til umfjöllunar. Hann er góður stjórnandi og hefur farsællega leitt starfsemi SFF og Lífeyrissjóð bankamanna á liðnum áratugum.”
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira