Söngelskir félagar í heimsreisu Marín Manda skrifar 10. apríl 2014 12:30 Ástmundur Kolbeinsson, Jónas Atli Gunnarsson og Sæmundur Hrafn Linduson skemmta sér í heimsreisu.
Ástmundur Kolbeinsson, Jónas Atli Gunnarsson og Sæmundur Hrafn Linduson ferðast um heiminn og semja lög í hverju landi um upplifun sína til að skapa minningar. Lögin eru orðin fjögur. „Við tókum okkur frí frá námi í eitt ár til þess að safna kröftum fyrir háskólann í haust og fannst tilvalið að nýta árið í að safna pening til að gera eitthvað sem okkur hefur alltaf dreymt um,“ segir Sæmundur Hrafn Linduson þegar blaðamaður nær tali af honum þar sem hann er staddur í Kína. Eftir menntaskólann fengu grunnskólavinirnir Ástmundur Kolbeinsson, Jónas Atli Gunnarsson og Sæmundur Hrafn Linduson þá hugmynd að kynnast annarri menningu og siðum í von um að víkka sjóndeildarhringinn. Eftir að hafa unnið myrkranna á milli í tíu mánuði lögðu þeir land undir fót og hófu heimsreisu sína. Áætluð heimkoma er um miðjan júní en þangað til stefna þeir á að deila upplifunum sínum í gegnum tónlistina og semja nýtt lag um hvert land sem þeir heimsækja.DCIM\100GOPRO Ástmundur Kolbeinsson, Jónas Atli Gunnarsson og Sæmundur Hrafn Linduson„Við höfum allir gaman af því að spila á hljóðfæri og syngja og þessi hugmynd kom upp stuttu fyrir brottför. Við vildum líka gera eitthvað skemmtilegt og frumlegt til að skapa minningar,“ segir Ástmundur. Þrímenningarnir hafa nú þegar samið fjögur lög en þeir hafa ferðast til Svíþjóðar, Danmerkur, Dúbaí og Japans og eru staddir í Kína um þessar mundir. Félagarnir segja ferðalagið hafa verið ævintýri líkast og vonast til að halda sínu striki peningalega séð. Hins vegar hafi menningarsjokkið gert vart við sig þegar komið var til Asíu. „Í Dúbaí var horft illilega á okkur þegar við löbbuðum um í stuttbuxum. Í Japan var okkur sýnd ótrúleg gestrisni og hjálpsemi sem við höfum aldrei kynnst áður. Sæmi spurði mann úti á götu hvar væri hægt að kaupa bjór og maðurinn fylgdi Sæma í næstu matvörubúð, fann bjórinn fyrir hann, beið með honum í röðinni, fylgdi honum alla leið að hótelinu okkar og hneigði sig svo. Í Kína er mikið starað á okkur vegna þess að við erum hvítir og hávaxnir. Við höfum einnig lent í því að vera stoppaðir úti á götu svo að fólk geti tekið mynd af sér með okkur,“ segir Jónas Atli Gunnarsson. Búast má við fleiri lögum frá félögunum því framundan er ferðalag til Taílands, Kambódíu, Víetnams, Malasíu, Indónesíu og Bretlands.
Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira