Erlent

Amnesty gagnrýnir Grikki

Mannréttindasamtölin Amnesty International gagnrýnir öryggisgæslu grískra stjórnvalda fyrir ólympíuleikana í ágúst. Samtökin segja að hætta sé á að viðbúnaðurinn skerði félagsleg réttindi ýmissa minnihlutahópa á borð við sígauna, sem séu berskjaldaðir fyrir aðgerðum stjórnvalda. Grísk stjórnvöld hafa safnað saman innflytjendum, flóttamönnum, hælisleitendum og heimilisleysingjum til að tryggja öryggi gesta og íþróttamanna á ólympíuleikunum. Samtökin segjast skilja þörf stjórnvalda til að tryggja öryggi borgara en fara fram á að það verði ekki gert á kostnað mannréttinda minnihlutahópa eða annarra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×