Erlent

18 látnir í Tsjetsjeníu

Að minnsta kosti átján létust í bardögum öryggissveita Tsjetsjeníu, sem hliðhollar eru yfirvöldum í Moskvu, og tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna suðaustur af Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, í nótt. Eins og kunnugt er hefur blóðugt stríð geisað undanfarin ár í landinu á milli aðskilnaðarsinna annars vegar og öryggissveitanna og rússneska hersins hins vegar. Líkur eru á að fleiri hafi fallið í bardögunum í nótt en ekki hafa borist nánari fréttir af tölu látinna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×