Erlent

Dregin út úr Niagarafossum

Ung kona var bókstaflega dregin út úr Niagarafossum um helgina. Ekki er vitað hvernig konan lenti í fossunum en hún náði að hanga í kletti við fossana. Ofsahræðsla greip konuna sem ýmist var stjörf eða baðaði út öllum öngum og hótaði að stökkva. Björgunarmenn sigu niður til hennar og komu reipi utan um hana. Loks var hún dregin upp en varð ekki meint af þessari lífsreynslu. Sjá má myndir af atvikinu á Veftíví síðunni eða með því að smella á hlekkinn sem fylgir fréttinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×